Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 45

Náttúrufræðingurinn - 1980, Blaðsíða 45
ætti eftir að einkenna hið fullþroskaða afkvæmi. Inni í annað hvort eggfrumu eða sáðfrumu væri lítil nýsköpuð mannvera sem einungis biði þess að fá að stækka. Þessari ofursmáu mannveru var gefið nafnið Homunculus. Smásjár- rýnendur þeirra tíma töldu sig jafnvel geta séð Homunculus litla inni í sáðfrum- um mannsins og teiknuðu skemmtilegar myndir af honum (1. mynd). Upp úr aldamótunum 1800 urðu verulegar breytingar á rannsóknarað- ferðum líffræðinga. Þeir tóku nú að leggja rækt við athuganir á innri gerð lifvera, og varð það fljótlega til þess að breyta viðhorfum. í fyrsta lagi kom í ljós að allar lífverur eru gerðar úr örsmáum einingum, frumum. I öðru lagi að sér- hver lífverutegund býr yfir sérstöku innra skipulagi sem ákvarðað er stig af stigi við þroskun lífverunnar en er ekki mótað í eitt skipti fyrir öll við tilurð hennar. Heimspekingurinn Immanuel Kant orðaði þetta þannig að lífverurnar hlytu að vera sjálfskipulagðar. Þessi hugmynd, að lífverurnar séu sjálfar mótendur síns eigin skipulags, er enn i góðu gildi. En hvaðan gat lífverunum komið máttur og megin til að grundvalla hið innra skipulag sitt og halda þvi við, til að lifa? Þekking á efnaskiptum lífvera var svo til engin á þessum árum, og orkuhugtak eðlis- og efnafræðinnar var enn illa skilgreint. Því höfðu menn ekki annað til úrræða en að ætla lifverurnar vera gæddar sérstöku afli, lífsafli, sem væri í senn drifkraftur og mótandi allrar lífsstarfseminnar. Þetta nauðsynlega en torskilda afl var talið vera eiginleiki líf- verunnar í heild en ekki einstakra hluta hennar. Um og rétt eftir miðja 19. öld urðu 1. mynd. Homunculi sem menn héldu sig sjá í sáðfrumum mannsins. Gamlar teikningar. enn þáttaskil i sögu líffræðinnar. Árið 1858 settu Charles Darwin (1809— 1882) og Alfred Russell Wallace (1923—1913) fram kenningu um þróun tegundanna, og árið 1859 kom út bók Darwins, Uppruni tegundanna. Með þróunarkenningunni var nýrri vídd aukið við heim líffræðinnar. Það var timinn. Lífið hlaut að eiga sér sögu, langa sögu sífelldra breytinga þar sem ein tegund tók við af annarri í óslitinni röð. Einfalt skipulag fyrstu lifvera jarðar hafði þróast til æ margbrotnari gerðar og loks til manns. Kjarni þróunarkenningarinnar er hugmyndin um náttúruval. Innan sér- hverrar tegundar ríkir mikill breytileiki bæði hvað varðar útlitseinkenni og hvers kyns lífsstarfsemi. Þessi breytileiki er að verulegu leyti arfgengur og getur haft áhrif á viðkomu og lífslíkur. Þær arfgerðir eða afbrigði sem stuðla að aukinni viðkomu munu að öðru jöfnu 299
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.