Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 7

Náttúrufræðingurinn - 1980, Síða 7
niður á lagmót í þekjunni, eða jafnvel niður að jörð. Halli fjallshlíðinni svo að skerspennan við lagmótin sé meiri en núningsviðnámið rennur snjóþekjan af stað og brotnar í marga fleka. Þannig hefst flekahlaup (4. mynd b). A svipað- an hátt má lýsa upphafi lausasnjóflóða (4. mynd a). Einhvers staðar á litlum bletti í fjallshlíð er samloðun í snjónum svo lítil, að hann skríður eða veltur af stað og hrindir nálægum snjó á hreyf- ingu, sem aftur ýtir af stað snjónum neðar í hlíðinni. Stöðuorka leysist úr læðingi og núningskraftar ná ekki að eyða henni. Snjórinn í brekkunni er í óstöðugu jafnvægi og við keðjuverkun fer stöðugt stærra svæði á hreyfingu. Af ofansögðu er ljóst, að styrkur snjó- þekju, festa hennar við botn og jaðra og spennur, sem á hana verka, ráða úrslit- um um hvenær snjóflóð fellur. Gerð snjóþekju. lnnri styrkur og festa við lagmót eða botn Þol snjóþekju gegn spennu fer eftir styrk einstakra snjólaga og festu við lagmót í þekjunni og botn hennar. Auk þess er þekjan tengd hlíðinni við efri og neðri jaðar sinn. Styrkur einstakra snjólaga i þekjunni fer eftir gerð snjókornanna. Strax og snjór fellur hefst ummyndun hans og með tímanum verða snjókornin æ meir kúlulaga. Við það sest snjóþekjan, eðl- ismassinn vex og auk þess samloðun hennar og styrkur. Hitastig í snjónum ræður mestu um hve hröð þessi um- myndun er. Þegar hitastig er nálægt frostmarki er ummyndunin ör en úr henni dregur þegar kólnar og við -í-40oC stöðvast hún alveg. Þurr lausa- mjöll hefur litla samloðun en votur snjór hefur mikla samloðun og þolir vel spennu. Verði snjór hins vegar að krapi dregur mjög úr samloðun hans. Auk hitastigs hefur vindur við snjókomu mikil áhrif á gerð snjóþekju. Vindbarin snjó- hella hefur allmikla samloðun en sé hún þurr er hún stökk og þolir illa snöggar breytingar í spennu. Þótt ummyndun á snjó auki verulega styrk snjóþekju er ein mikilvæg undan- tekning frá þeirri reglu. Sé hitastigull f snjóþekjunni getur myndast inni i henni lag af viðkvæmum, óstöðugum kristöll- um, sem nefnast djúphrím. Mest hætta er á að slíkir kristallar myndist ef miklir kuldar eru snemma vetrar þegar snjóa- lög eru þunn og ósigin. Festa snjóþekju við botn fer að miklu leyti eftir hrjúfleika botnsins. Sléttar skriður eða jafnlendar hlíðar þaktar jarðvegi, t. d. grasi, veita lélega festu. Stórgrýti, urðir, hjallar og klettabelti 261

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.