Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 36

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 36
skotið, með nokkrum millibilum, smá- sprotum, kyrkingslegum og grannvöxn- um, fárra sm háum, með Ijósgrænum, hálfskinnkendum blöðum, mjög mis- ntunandi að lögun og stærð. Þó sýnishorn þessi væru eigi sem best meðfarin, var ntjer þegar ljóst, að hjer gat ckki verið um neinn þann runna að ræða, sem kunnugt var um, að yxi hjer á landi. Sum blöðin mintu mig á esþilauf, þó miklu fleiri blöðin væri því ólík. Stefán hugði þetta ösp, en vildi ekki fullyrða neitt fyrr en hann hefði skoðað plöntuna á vaxtarstaðnum, en það dróst til haustsins 1913. En áður hafði Kofoed Hansen skógræktarstjóri komið á stað- inn og fullyrt að þetta væri ösp. Stefán Kristjánsson skógvörður setti háa gaddavírsgirðingu um asparbreiðuna árið 1912. Stefán Stefánsson skrifar áfram: Bletturinn, innan girðingar, mun vera um 20 arar (2/3 dagsl.). Melhallið er allbratt og með smá-hvylftum. Um það hjer um bil mitt liggur belti, um 20 m breitt upp og ofan, og um 70 m langt frá austri til vesturs, nálega algróið öspinni, og henni nær einvörðungu; voru runn- arnir þjettir með köflum og mældi jeg þar á nokkrum stöðum alt að 1 m langar plöntur, en svo eru þær kræklóttar, að þær ná hvergi nærri þeirri hæð. Umhverfis þetta runnbelti, einkum ofan og neðan, er melurinn ber að heita má, en stanglingur er þar af nýjum rótar- sprotum, ntörgum allþroskalegum, alt að 40 sm, og víða alveg beinum skýtur þeim upp frá lárjettum rótartágum, er liggja grunt i jörðu, oft eigi nema 2—5 sm, og víða sjer i þær berar. Sumstaðar reka þær olnboga upp úr melnum, og vaxa þá oft smáhríslur út úr berum olnbogunum. Langt er oft á milli sprotanna á sömu tág. Utan girðingarinnar, einkum vestan við hana, var stanglingur af rótarsprotum innan um fjalldrapa og sortulyngsrunna, en allir voru þeir meira og minna bitnir; sýnir það, hvað fje er sólgið í plöntuna, enda kvað espilauf hafa verið notað til fóðurs í Noregi. Hvergi vottaði fyrir blómum eða aldin- um, svo telja má víst, að runnar þessir sjeu með öllu ófrjóir og æxlist eingöngu og breiðist út með rótarsprotum. Stefán lýsir síðan öspinni nákvæm- lega á grasafræðilega vísu og birtir af henni þrjár myndir. Segir m. a.: Islenska öspin (P. tremula L. f. islandica) er kræklóttur smárunni, 50—100 sm hár, sprottinn upp af löngum allgildum (venjulega 5 — 8 mm að þverm.), þykk- börkuðum, víðskriðulum, grunnlægum rótartágum. Bolstofnarnir alt að 7 sm að ummáli með örmjóum árhringum . . . Stefán gat talið 17 — 20 árhringa í gildustu bolstofnunum, en komin voru ellimörk á um tvítuga stofnana. Telur hann liklegast að runnar þessir séu allir komnir út af einum og sama einstakl- ingi, svo öll runnabreiðan sé í raun og veru einn einstaklingur. Ekki þótti Stef- áni neinar likur benda til þess að öspin hafi verið gróðursett þarna. Þótti hon- um trúlegast að öspin hafi vaxið þar frá alda öðli, en líklega strjált innan um birkiskógana, og hafi verið stórvaxnari jjar sem hún naut skjóls og friðar. Segir ennfremur að nafnið Espihóll bendi ótvíræðilega til þess, að jrarna hafi ösp eða aspir gróið til forna. Hafa þær að öllum líkindum vaxið sunnan í hólnum og þrifist jaar vel. . . . Espihóllinn i Fnjóskadal og Espihóll- inn eyfirski eru báðir fornar jökulöldur. 290

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.