Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 52

Náttúrufræðingurinn - 1980, Side 52
orku. Frumbjarga lífverur, en það eru plöntur, þörungar og vissir gerlar, geta hagnýtt sér orku sólarljóss eða ólífrænna efna og þurfa ekki á lífrænum næring- arefnum að halda. Ófrumbjarga lífver- ur, eins og t. d. maðurinn og gerillinn sem fyrr var sagt frá, þarfnast hins vegar lífrænna næringarefna bæði sem kol- efnis- og orkugjafa. Þær verða að sækja lifræn næringarefni sín til þeirra sem frumbjarga eru. Hér verður ekki fjallað sérstaklega um orkubúskap lífveranna. Einungis skal minnt á að hann krefst margbrotinna efnakerfa þar sem fjöldi lifhvata og annarra sérvirkra hvítusam- einda koma við sögu. Eins og gefur að skilja ræðst sérvirkni þessara kerfa af erfðaefni lífveranna. Fjölgun lífvera fer fram með ýmsum hætti. Margir einfrumungar fara að líkt og gerillinn sem áður var lýst: Þegar þeir hafa vaxið að ákveðnu marki skipta þeir sér í tvennt. Tilveru einstaklingsins lýk- ur þá með fjölgun en ekki dauða. For- eldrisfruma lifir i vissum skilningi áfram í afkvæmisfrumum sínum. Enginn skyldi ætla að tvískipting gerilfrum- unnar sé einföld í framkvæmd. Þrátt fyrir mjög miklar rannsóknir á síðustu áratugum er enn langt frá því að menn skilji hvernig slík skipting fer fram. En örugglega er erfðaefni gerilfrumunnar eftirmyndað af einstakri nákvæmni í sérhverri frumukynslóð þannig að af- kvæmisfrumurnar hljóti báðar sams konar gen og sams konar eiginleika í arf frá foreldri sinu. Þetta er kynlaus æxlun. Svipuðu máli gegnir og um fjölgun lík- amsfrumna í fjölfrumungum, t. d. lík- amsfrumna mannsins. En þegar fjöl- frumungurinn sjálfur æxlast er venju- lega farið öðruvísi að. Dýr og plöntur fjölga sér yfirleitt með kynæxlun. Hún er fólgin í því að tvær frumur, venjulega sín frá hvoru kyni og sín frá hvorum einstaklingi, renna saman og mynda hina svonefndu okfrumu. Upp úr henni vex síðan afkvæmi sem ævinlega likist foreldrum sínum. Það sem hefur gerst nálgast sjálfseftirmyndun. En hér er ekki um eftirmyndun einnar frumu að ræða eins og hjá gerlinum heldur eftirmyndun heils líkama sem gerður er úr fjölmörgum frumutegundum og er mjög margbrotinn að skipulagi. Ok- fruman býr yfir boðum eða forsögn um hvernig byggja á þennan líkama og hvernig hann á að starfa. Þroskun ein- staklingsins er fólgin i túlkun á slíkum boðum, erfðaboðum. Þessi boð eru varðveitt í kjarnsýrunni DKS. Hún er erfðaefni allra lífvera sem gerðar eru úr frumum. I okfrumunni eru tvö eintök af erfðaboðum lífverunnar, og hefur annað kornið frá föður en hitt frá móð- ur. Afkvæmið mótast því jafnt af erfða- efni föður og móður. Við skulum veita því sérstaka athygli hversu lítið fer fyrir því efni sem á eftir að stjórna þroskun afkvæmis og móta alla gerð þess. Okfruma mannsins, sem myndast við samruna eggfrumu og sáð- frumu, vegur um einn milljónasta hluta úr grammi. Erfðaefnið í litningum hennar (6. mynd) er einungis lítið brot af þessum massa eða tæplega sex bill- jónustu hlutar úr grammi. Hitt er mestmegnis forðanæring. Þótt létt og fyrirferðalítið sé geymir þetta efni samt öll þau boð sem þarf til að stjórna þroskun mannslíkama sem er a. m. k. 50 milljarð sinnum þyngri en okfruman. Enda kemur í ljós við nánari athugun að þetta efni getur borið feiknalega mikið af boðum. Það jafngildir nefnilega um 5.6 milljörðum kirnispara í tvöfaldri 306

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.