Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 55

Náttúrufræðingurinn - 1980, Page 55
áhangendur meðal þeirra sem lítt hafa komist í kynni við erfðavísindi nútím- ans. Enda þótt erfðaefnið taki ekki við beinum fyrirmælum frá umhverfinu er það ekki óbreytanlegt. Breytingar sem á því verða eru einu nafni nefndar stökk- breytingar. Oftast eru þetta breytingar á einstökum genum, en þær geta náð til margra gena og varðað skipulag eða magn erfðaefnis. Það sem hér verður sagt um stökkbreytingar er einkum miðað við breytingar á einstökum gen- um, genabreytingar. Flestar þeirra eru fólgnar i smávægilegum röskunum á kirnisröð gens (7. mynd). Slíkar breyt- ingar má m. a. rekja til þess að eftir- myndun erfðaefnisins er ekki óskeikul, þótt nákvæm sé. Mistök eru að vísu mjög sjaldgæf: Við eðlilegar aðstæður eru líkur á stökkbreytingum sjaldan meiri en einn af hundrað þúsund til einn af milljón fyrir hvert gen í hverri frumukynslóð. Þessar líkur er hins vegar hægt að auka mjög mikið ef lifverur eru meðhöndlaðar með ákveðnum stökk- breytandi efnum eða geislaðar, t. d. með röntgengeislum eða útfjólubláum geisl- um. Helsta afleiðing slíkra stökkbreyt- inga eru skipti á amínósýrum í hvítu- sameindum, sem aftur geta leitt af sér röskun á hvítustarfsemi og breytingar á hinum margvíslegustu eiginleikum líf- veranna. Verður vikið aftur að þessu efni í kaflanum um þróun. Eitt hið athyglisverðasta við stökk- breytingarnar er að þær eru tilviljunar- kenndir atburðir sem gerast án alls tillits til þess hvort þær korna sér vel eða illa fyrir hlutaðeigandi lífveru. Tilviljun ræður hvar í erfðaefninu stökkbreyting verður. Um það ráða umhverfisþættir engu. En hafi stökkbreyting eitt sinn orðið er hún eftirmynduð og getur þvi gengið að erfðum til næstu kynslóðar. Tilviljunin festist. Umhverfisþættirgeta að visu haft áhrif á tíðni stökkbreytinga, en þeir geta með engu móti stýrt breyt- ingum á ákveðnum genum einstakl- ingsins. Þannig skapast tilviljunarkenndur breytileiki erfðaefnisins. Síðan er það umhverfisþáttanna að velja úr og stuðla að varðveislu þeirra breytinga sem hag- kvæmar eru en hafna hinum sem eru til óþurftar. Af því sem nú hefur verið sagt má marka að breytileiki lífveranna er af tvennum toga spunninn. Annars vegar óarfgengur breytileiki sent er samofinn aðlögunarhæfni einstaklingsins, hins vegar arfgengur breytileiki sem rekja má til stökkbreytinga. Æskilegt er að greina sem skýrast á milli þessara tveggja þátta breytiieikans, en það getur stundum verið erfitt. Alltaf verður að hafa í huga að boð erfðaefnisins ráða svigrúmi aðlögunarhæfninnar. Lifverur sem eru tiltölulega einfaldar að skipulagi, t.d. gerlar, hafa yfirleitt mjög takmarkaða aðlögunarhæfni. Svaranir |teirra við áreitum umhverfis- þátta eru einfaldar, valkostir þeirra fáir. En því margbrotnara sem skipulag lif- vera er þeim mun stærri verður yfirleitt hlutur aðlögunarinnar. Samspil þeirra við umhverfi sitt verður æ fjölbreyti- legra, og vaxandi sveigjanleika gætir í viðbrögðum þeirra við ýmiss konar áreitum. Aðlögunarsvið þeirra víkkar. Það er eins og þær hafi öðlast visst frelsi frá ofurvaldi erfðaefnisins. Þetta á i rík- ustum mæli við um dýr sem hafa þroskað taugakerfi. Taugakerfið eykur mjög á þá möguleika sem dýrið hefur til að greina áreiti ýmiss konar umhverfis- 309

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.