Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 43
2. mynd. Suðurendi samsetta gangsins á Streitishvarfi. Horft í suður. Gangur-
inn er um 30 m þykkur. — The south end of the composite dyke on Streitishvarf.
Looking south. The dyke is about 30 m thick.
fann ég stöku holufyllta æð samsíða
eystri ganginum.
Frá suðurenda Streitishvarfs að
norðurenda þess mældi ég þykkt
gangsins á 12 stöðum. Mælingarnar
sýna að þykkt gangsins breytist lítið
eftir Streitishvarfi, en minnkar þó
heldur til norðurs.
Norðurendi Streitish varfs
Þykkt gangsins í nyrstu opnunum á
Streitishvarfi er um 26 m. í næstnyrstu
opnunni (4. ntynd) er líparíthlutinn
um 13 m og basalthlutarnir 7,5 m, sá
vestari, og 5 m sá eystri. Ytri jaðar
eystri basalthluta er úti í sjó, þannig að
raunveruleg þykkt hans gæti verið
meiri. Líparíthlutinn þynnist bæði upp
og til norðurs. Þannig er þykkt þess
hluta einungis 10 m í nyrstu opnunni á
Streitishvarfi, en sú opna er um 25 m
norðar en þessi.
Líparítið í þessum nyrstu opnum er
Ijósgrátt og vel stuðlað. Stuðlarnir eru
gjarnan um 5 cm í þvermál og sums
staðar virðast þeir eilítið sveigðir upp
á við. Basalthnyðlingar eru bæði færri
og smærri í þessum opnum en í syðstu
opnunni.
Lambafell
Frá nyrstu opnunni á Streitishvarfi
liggur gangurinn yfir Breiðdalsvík og
kemur á land í Hökulvík (5. mynd).
Þaðan liggur gangurinn eftir Hökul-
víkurgili upp á topp Lambafells. í
Hökulvík áætlaði ég þykkt hans 16 m,
en vegna erfiðra aðstæðna er hið
minnsta 2 m óvissa í þessari tölu.
Stefna gangsins í fjörunni er N4°A
stefnan milli opnunnar í fjörunni og
fyrstu opnunnar ofan við veginn er
N20°A, sem passar vel við stefnuna á
Streitishvarfi.
137