Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 14

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 14
1. mynd. Hreinsuð barnamold úr Mývatni. Skelin á miðri mynd er af kísilþörungnum Cocconeis placentula. Brot af öðrum kísilþörungaskeljum sjást í kring. Myndin er tekin með rafeindasmásjá og er stækkunin um 1000 x (Mynd Sigurjón Sindrason og Árni Einarsson). Mánamjólk Kísilgúr hefur nokkuð verið til umræðu á undanförnum misserum. Orðið kísilgúr er nýyrði í íslensku eins og Halldór Lax- ness benti á í frægri ritgerð, Hernaðurinn gegn landinu, árið 1970: „Þessi málmleysíngi hefur frá ómunatíð heitið barnamold eða pétursmold á íslensku. Hvernig stendur á að efnið skuli altíeinu heita kísilgúr, svo óvanir sem við erum því að taka upp hráa þýsku í tungu okkar.“ (Yfirskygðir staðir bls. 134). Barnamoldarnafnið mun dregið af notk- un efnisins til að púðra ungbarnabotna, en barnamoldin drekkur vel í sig raka. Fjórða nafn efnisins er mánamjólk. Svo segir Björn Halldórsson (d. 1794) í Sauðlauksdal í útskýringum með íslensk- latneskri orðabók sinni: „Mánamjólk er hvítur leir mjúkur og feitur undir gómi en næsta því sama sem menn kalla á íslensku pétursmold og brúkast helst til að þurrka með náttúrlega vætu af barns líkama, er misjöfn eftir mineralibus í jörð- unni, fellur sum í duft þá hún þornar. Enn önnur heldur sér vel og selst af til sömu brúkunar. Getur brúkast til hvíts málverks óvaranlega.“ (Sjá Jón Helgason í Biblio- theca Arnamagnæana 29: 101-160). Mánamjólk sú, er í duft fellur þá hún þornar, er sennilega ljós gosaska en hin er vafalaust ekta barnamold. Skeljar kísil- þörunga eru aðalefni barnamoldarinnar. Kísilþörungurinn er aðeins ein fruma og hefur hún utan um sig samloku úr gagnsæjum ópal. Er þörungurinn deyr falla skeljarnar til botns og þar sem kísil- þörungagróður er mikill verða þær aðal- uppistaðan í botnleðjunni og barnamold verður til. Eins og meðfylgjandi mynd ber vott um eru kísilþörungaskeljarnar alsettar agnarsmáum götum þannig að þær draga auðveldlega í sig vatn. Eru skeljar margra tegundanna hin mesta völundarsmíð. Kísil- þörungarnir lifa einkum í vatni og hefur barnamoldin því sest til í stöðuvötnum þótt víða um land megi nú finna hana á þurru landi. Arni Einarsson Náttúrufræðingurinn 55(2), bls. 60, 1985 60

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.