Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 34

Náttúrufræðingurinn - 1985, Page 34
7. mynd. Einn af gígunum, sem Leiðólfsfellshraun hefur komið úr. — One of the Leiðólfsfell craters. slóðir er það oftast dauft eða vantar alveg. Við húsrúst suðaustan í Leiðólfsfelli er öskulagið frá þessu gosi 1,2 m undir yfirborði og stendur óhreyfð hleðsla á því. í öðru lagi kemur svo það sem hér fer á eftir: Á Hólahafti rétt norðan við línuveginn hefur mikið gosmalar og grjótlag kastast frá eldvarpinu út á mýrina. Efnið er gróft, mikið af hnefa- stórum og stærri steinum, bombum, gjalli, grófum vikri og ösku. Nokkuð er lagið misþykkt þar sem það liggur út á slétta mýrina, en finna má staði þar sem það er 40—50 cm. Á því vex nær eingöngu mosi, en annar gróður er ekki teljandi. í dálitlum, grónum skorningi reyndist mögulegt að grafa gegnum þetta lag. Það notfærði ég mér nú í haust, nánar til tekið þann 11. október. Með rýmilegri fyrirhöfn var mögulegt að afhjúpa undirlagið og aft- ur draga fram í dagsljósið gamlar mosaþúfur, sem þar hafa sofið svefni Þyrnirósu frá því að ósköpin dundu yfir. Með því að sópa varlega ofan af þeim mátti safna heillegum, þéttum mosa sem varðveist hefur fádæma vel. Það safn bíður nú aldursákvörðunar. HEIMILDIR Jón Steingrímsson. 1973. Æfisaga og önn- ur rit. — Helgafell, Reykjavík: 438 bls. Jón Steingrímsson. 1904—1914. Fullkomið skrif um Síðueld. Skýrslur um Skapt- árgosin 1783. — Safn til sögu íslands IV. Kaupmannahöfn og Reykjavík 1904-1915. Jón Jónsson. 1975. Nokkrar aldursákvarð- anir. - Náttúrufræðingurinn 45: 27- 30. Sigurður Þórarinsson. 1981. Bjarnagarður — Árbók hins íslenska fornleifafélags 1981: 5-39. 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.