Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 1985, Qupperneq 42
Tidni látra Fjöldi kópa 3. mynd. Dreifing útselslátra eftir stærð (fjölda kópa) haustið 1982. Meðalfjöldi kópa í látri er 33 og miðgildið 14. — Distribution by size of the breeding places of grey seals at the coast of Iceland, in the autumn of 1982. Mean numbers of pups per breeding locality is 33 and the mode is 14. Tíðni: frequency: Fjöldi kópa: number of pups. útselskópum í Skarðslöndum, en næst mest í Hergilseyjarlöndum. Síðan kemur strandsvæðið Strandir-Skaga- fjörður með 416 kópa. Minna er á öðrum strandsvæðum og á ströndinni frá Skagafirði um Langanes til Beru- fjarðar var ekki talin ástæða til að leita því að fátt bendir til þess að útselur kæpi þar nema ef vera kynni á Mánár- eyjum, samkvæmt nýlegum upplýsing- um. Dreifing útselslátra og fjöldi kópa eftir svæðum er sýndur á 4. mynd. Kœpingartími Tími til talningar var valinn rétt fyrir miðjan október, með það fyrir augum að telja kópana, þegar kæping væri í hámarki. Við val á tímanum var höfð hliðsjón af upplýsingum frá sel- veiðibændum og reynslu af könnun höfundar haustið 1981, en þá reyndi hann að fylgjast með framvindu kæp- ingar útselsins í nokkrum eyjum í Breiðafirði. Kom þá meðal annars í ljós, að svo virtist sem selirnir kæptu fyrr í firðinum innanverðum en utan- verðum. — í byrjun október var kæp- ingin í fullum gangi í Reykhóla- löndum, en var lokið í byrjun nóvem- ber og flest allir kóparnir farnir í sjó- inn. Sama er að segja um Ólafseyjar. Gagnstætt þessu var kæping í fullum gangi í Hergilseyjarlöndum á þessum tíma; 11. nóvember 1981 voru um 40 útselskópar í Oddleifsey (sjá einnig töflu 2). Á Ströndum og Skaga benda niður- stöður talninga til þess að kæping sé í hámarki um mánaðamótin október og nóvember; 12. október voru aðeins um 40 útselskópar á Þaralátursnesi, en við síðari yfirferð 1. nóvember voru þeir orðnir 235. Á Skaga hefur útsels- kópaveiðin ávallt verið stunduð í fyrstu viku nóvembermánaðar (Jón Benediktsson, bóndi í Höfnum, Skaga, pers. uppl.). Við Suðaustur- 88

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.