Náttúrufræðingurinn - 1985, Side 53
í gerð hennar. Það er von okkar, að mynd-
in örvi fólk til að líta á plöntur og ekki væri
síðra, ef hún yrði til að vekja athygli á
félaginu. í öðru lagi er verið að undirbúa
útgáfu á bók um íslenska sjávarþörunga og
mun félagið að einhverju leyti koma þar
við sögu. Það er gert ráð fyrir, að félags-
menn fái hana á vildarkjörum, þegar hún
kemur út.
í þriðja og síðasta lagi barst stjórn fé-
lagsins bréf, dagsett 18. des. s. 1., frá
Kynningarþjónustunni sf., þar sem því var
gefinn kostur á að verða aðili að útgáfu
vandaðs náttúrufræðirits, sem yrði al-
mennara eðlis og víðfeðmara að því er
efnisgreinir varðar, en þau sem fyrir eru.
Ætlun þeirra, sem að Kynningarþjónust-
unni standa, en það eru Helgi H. Jónsson,
Magnús Bjarnfreðsson og Vilhelm G.
Kristinsson, er, að efnistök verði af öðrum
toga en í Náttúrufræðingnum og meira í
ætt við ábyrga blaða- og fréttamennsku
með mörgum og vönduðum litljósmyndum
og skýringarmyndum. Um efni þessa bréfs
var ítarlega fjallað í stjórn og að auki
boðaði hún ritstjóra og ritnefndarmenn til
fundar. í stuttu máli varð niðurstaðan sú,
að án alls efa mun blað í ætt við fyrirhug-
aða útgáfu líta dagsins ljós fyrr en seinna.
Æskilegt er, að Náttúrufræðifélagið eigi
hlut að slíku blaði, enda er það í samræmi
við stefnu félagsins. Það verður þó að vera
á mun breiðari grundvelli en Náttúru-
fræðingurinn til þess að höggva ekki of
nærri honum. Það var ákveðið að beina
tilmælum til Kynningarþjónustunnar um
að leita til fleiri aðila til þess að tryggja
fjölbreytni væntanlegs blaðs.
NÁTTÚRUFRÆÐISAFN
Á fundi stjórnar þann 3. október var
ákveðið að reyna enn á ný að taka á mál-
um Náttúrugripasafnsins. Þá var stofnuð
nefnd undir forsæti Þórs Jakobssonar um
að afla því fylgis meðal ráðamanna og al-
mennings að reisa nýtt og veglegt náttúru-
fræðisafn. Margir fundir hafa verið haldnir
og þar lagt á ráðin um hvernig þoka megi
þessu þjóðþrifamáli áleiðis.
FJÁRHAGUR
í lok ársins var höfuðstóll kr. 677.320,97,
en á liðnu reikningsári nam halli tæpum
tvö hundruð þúsund krónum. Hafa skal í
huga, að enn á eftir að greiða prentun og
annan kostnað við Náttúrufræðinginn fyrir
hálft árið 1983 og allan 54. árgang. Enda
þótt rúmar 10 þúsund krónur væru í hagn-
að af ferðum, hækkuðu fargjöld nær ekk-
ert frá fyrra ári. Tekjur af leiðbeininga-
námskeiðum urðu tæpar átta þúsund
krónur.
Á fjárlögum voru félaginu veittar kr.
7.000 til starfseminnar. Þessi styrkur rann
til útgáfu á Náttúrufræðingnum.
99