Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 37

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 25 iimimiiiiiiiiiiimiimiiiimmiiiiiiiiiiiiiimiiimitiiiiiiiiiiiiiiiiimmimiiiimiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiciit nef, eða fætur — fuglarnir noti sem vopn og það bæði í bardaga við aðrar dýrategundir og jafningja sína eða frændur í ríki náttúrunnar. Samanburður á fuglum og ferfætlingum í þessu efni getur líka verið gagnlegur. En um spendýrin er það að segja, sem raunar ,er alkunnugt, að þau beita fram- og aftur- fótum, hornum og tönnum í þessu skyni. — Hér á eftir mun eg svo í sem styztu máli reyna að skýra frá því helzta, sem eg hefi komizt að í þessa átt, bæði með eigin athugunum og eftir frá- sögn áreiðanlegra manna. Það mun áreiðanlegt, að skúmurinn slær með löppunum. Hefi eg þar sömu söguna að segja og nafni minn á Kvískerjum, veit nefnilega dæmi þess, að skúmur hefir hálfrotað mann. En skúmurinn hefir það einnig til að drepa að gamni sínu. Glöggur maður, Aðalgeir sál. Sigurðsson frá Máná á Tjörnesi, sagði mér, að einu sinni hefði hann séð skúm renna sér í fljúgandi æðar- fuglahóp og tvístra honum, ;en 3 fuglar féllu dauðir niður, — „slegnir“ af vængjum eða löppum skúmsins. Þessum dauðu fuglum leit skúmurinn svo eigi frekar við. Kjóann hefi eg séð slá hvolp um koll með löppunum. En kjóinn drepur einnig fugla, einkum unga óðinshana — sér til matar — o. fl. smáfuglateg- undir, og einu sinni sáum við Júl. Havsteen sýslumaður kjóa ráðast á fleygan rjúpuunga. Smáfuglana drepur kjóinn með nefinu. Eg hefi nokkrum sinnum séð fálka slá fugla á flugi, og einu sinni það svo nærri mér, að eg sá með vissu, að fuglinn — rjúpa — varð fyrir höggi af vængnum. Þá hafa og fleiri menn hér, sem of langt yrði upp að telja, sömu sögu að segja. Einstakt dæmi er það, sem Páll Sigurðsson símstjóri á Húsavík sagði mér frá. Hann var eitt sinn að ná valseggjum úr bjargi, og þá renndi fálkinn sér að honum og barði hann vont högg í höfuðið með vængnum. Aftur hefi eg fengið í bréfi frásögn um að maður, sem var að síga í bjarg í Elliðaey á Breiðafirði, sá fálka slá fugl rétt hjá sér til bana með löppunum. — Einnig hefi eg séð bæði smyril og fálka grípa fugla á flugi, án þess að slá þá. — Þá hafa ránfuglarnir þá aðferð, að grípa um höfuð fuglsins með kjaftinum og drepa hann á þann hátt, sbr. það, sem sagt er um skúminn hér að framan. En er nú óhugsandi, að þegar fálkinn slær fugl á flugi, að þá geti stundum verið um árekstur að ræða, nefnilega, að fuglinn, sem ofsóttur er, varpi sér skyndilega til hliðar og verði þá — að óvilja ránfuglsins — fyrir vængbarði

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.