Náttúrufræðingurinn - 1935, Blaðsíða 56
44 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111II111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ 11111111111111111111
og fyllilega þess virði, að hennar sé minnzt nokkuð. í henni eru birtar nið-
urstöðurnar af rannsóknum höfundarins á íslenzkum jarðvegi, einkum sýru-
magni, og er sýnilegt, að við þær rannsóknir hefir gætinn og áhugasamur
maður verið að verki. Það er varla efa bundið, að rannsóknir á íslenzkum
jarðvegi, og þá fyrst og fremst sýrumagninu (pH-koncentrationinni) er
frumatriði, sem verður að vera fullnægt, ef hreinrækta skal þær tegundir
nytjaplantna, sem hér geta þrifizt. í ritgerð þessari er fyrst kafli, sem
heitir: Yfirlit yfir sýrufar jarðvegsins og þýðing þess. Þar fer höfundurinn
fyrst á stað sem skemmtilegur rithöfundur, sem auðsjáanlega hefir samúð
með þvi verkefni, sem hann er að vinna, og ber á borð ýmsan fróðleik, sem
hefir almennt gildi, áður en hann fer að segja frá sínum rannsóknum. Þar
er talað um myndun jarðvegssýra, orsök súrra og basiskra áhrifa, grundvöll
sýrumælinga, afstöðu plantnanna til sýrustigsins, áhrif sýrustigsins fyrir
jarðveginn og sýrufar jarðvegsins í nágrannalöndunum. í þessum kafla
ritsins eru m. a. mjög merkilegar tölur, sem sýna innan hvaða marka sýru-
stigið verður að vera, til þess að ýmsar merkar nytjaplöntur geti þrifizt.
Höf. getur þess, hvaða sýrustig sé yfirleitt hentast fyrir gróður almennt,
sýnir sýrumagn í ýmsum löndum, og kemst að þeirri niðurstöðu, að íslenzkur
jarðvegur sé að þessu leyti betri en víðast annars staðar. Mér er kunnugt um,
að aðrir hafa komizt að svipaðri niðurstöðu, sem rannsakað hafa íslenzkan
jarðveg. — Þá koma rannsóknir höf. á sýrufari í íslenzkum jarðvegi, og er
fyrst sagt frá mælingunum. Þar er mjög skipuleg tafla um 650 sýrurann-
sóknir á mismunandi jarðvegi, og munurinn leynir sér ekki. Flatar mýrar
með flóagróður eru langsúrastar allra þeirra jarðvegstegunda, sem rann-
sakaðar voru, en á hinum enda mælikvarðans eru ísaleirar á melum, þeir
eru basiskir. Þá er samanburður á sýrustigi jarðvegsins á mismunandi tímurn
árs, og samanburður á sýrumagninu á sömu stöðum árið 1933 og 1934.
Eftirtektarvert er þar, að sýrustigið var heldur hærra árið 1934 en 1933,
og telur höf. ekki ólíklegt að það sé vegna rigninganna, síðastliðið sumar,
að vatnið hafi skolað burtu einhverju af basiskum efnum. Margt annað
fróðlegt er í ritgerðinni, t. d. rannsóknir á vatni, sem ekki er hægt að drepa
á hér, þ. á. m. kaflinn um gróðrarfar og sýi’ustig. Rannsóknir af þessu
tagi eru alveg áreiðanlega hyrningarsteinn undir landbúnaðinn, en miklu
þarf ennþá að bæta við.
Meiri rannsóknir, og fleiri ritgerðir um þetta efni!
ATH. Þeii'i sem vilja láta binda 3. og 4. árgang- Náttúrufræðingsins
inn eins og 1. og 2. árgang, geri svo vel að leggja ritið inn á skrifstofu ísa-
foldarprentsmiðju, fyrir 15. maí. Verða þeir að láta þess getið, hvaða lit
þeir vilja hafa á bandinu, skrifa nöfn sín á ritið, og greiða kr. 1.50 þegar
þeir sækja það aftur, innbundið.