Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 24

Náttúrufræðingurinn - 1949, Side 24
lfi NÁTTÚ RUFRÆtí 1 N G U RIN N frábrugðnir nálægustu eldstöðvum, sem flestallar eru gossprungur með gígaröðum. Og í þriðja iagi væri harla kynleg tilviljun, að af- skekktar eldrásir neðan úr iðrurn jarðar hittu allar á að opnast í hraunkvíslum eða stöðum, sem hraun áttu eltir að renna yfir, og ekki kæmi nokkur sletta upp úr hraunlausu svæðunum þar á milli og umhverfis. Ef einhver Iiefði spurt mig álits um myndun Rauðhóls fyrir nokkrum árum, meðan ég hafði aldrei séð innviði lians, hefði ég varla liikað við að telja liann gervigíg. En nú, eftir að hóllinn hefur verið krufinn til mergjar — í því nær bókstaflegum skilningi — með rekum og mokstrarvélum, er mér ekki nærri eins greitt um svör. Rauðhóll hefur reynzt mér eitt þeirra vándræðaviðfangsefna, er verða því flóknari sem þau eru meir rannsökuð. Við athugun mína ;i leifum hólsins hef ég fundið líkur fyrir því, að hann sé raunveru- legt eldvarp, en einnig því, að hann sé gervigígur. Hvorar tveggja líkurnar eru mjög sterkar, en stangast eins og já og nei. Ut úr þessu örigþveiti er vart önnur leið en einhver nýr skilningur á eðli gervi- gosa eða raunverulegra eldgosa. Og ekki þykir mér örvænt, að sá skilningur fáist við rækilega rannsókn á Rauðhól og fleiri svipuðum myndunum. Tækifæri lil slíkra rannsókna hefur aldrei boði/.t betra en nú, þegar hólarnir eru sundur grafnir. Ef til vill á nákvæm bergfræðileg og efnafræðileg rannsókn eftir að leiða í ljós svo mikinn mun á efni hólsins og hraunsins, að sýnt verði, að hann sé ekki tir því ættaður og hljóti því að vera raunv.l. eldvarp. En ef þetta skyldi nú korna í ljós, þá er eftir að skýra margt, sent enn virðist ótrúlegar tilviljanir — t. d.: Hvers vegna eru allir xenólítarnir, sem upp komu í gosinu, úr hinu næsta undirlagi lióls- ins, en engir komnir dýpra að? — Hvers vegna eru eldstöðvar á borð við Rauðhól flestar eða allar umluktar hraunstraumum, sem eiga sér upptök annars staðar? Miklu sennilegra er, að efna- og bergrannsóknin gefi engan úr- skurð. En samt gæti úrskurður fengizt — ekki sízt, ef malargryfjan heldur ái'ram að stækka. T. d. mundu óslitin tengsl milli hraunsins og hólkjarnans sanna gervigígstiIgátuna. — En þá er enn eftir að skýra, hvernig það má verða, að glóheit kvika tir rennandi hrauni smjúgi hin lausu jarðlög framan við sjálfa hraunbrúnina og gjósi þar upp aftur. Til er ]ró ;i íslenzka tungu frásögn sjónarvotts af svipuðum atburðinn. — Svo farast orð séra Jóni Steingrímssyni í riti sínu um Skaftárelda I7S-Í:

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.