Náttúrufræðingurinn - 1949, Page 49
U M ALDUR GEVSIS
41
ið, að hverasvæð.ð geti verið ennþá eldra. Þó mætti i'rekar geta þess
til, að það hefði myndazt einmitt í sambandi við þær miklu haggan-
r á landiriu, sem orðið hafa í jökulskeiðslokin, er landið tók að rísa,
leyst undan oki jökulskjaldarins. Og næsta öruggt má tel ja, að hvera-
svæð.ð sé a. m. k. 8000 ára gamalt.
Þess má geta, að síðustu sumurin hef ég nokkuð athugað útbreiðslu
líparítlaganna X og Y á nærsvæðum Heklu. Þeim athugunum er
ekki lokið, en ég tel að svo stöddu líklegast, að lag X sé hið grófa,
ljósa lag, sem liggur ofan á Þjórsárhrauninu, vestur af Heklu, að-
skilið frá hrauninu af 10—30 cm þykku móhellulagi. Er það þá all-
miklu yngra en Þjórsárhraunið. Hins vegar virð'st lag Y eldra en
Þjórsárhraunið og vera eitt af elztu öskulögunum á Heklusvæðinu.
Það má því telja líkle t, að hverasvæðið við Geysi sé eldra en hin
eiginlega Hekla.
I sambandi við liina stórauknu tæknilegu nýtingu jarðhita hér-
lendis liefur sú spurning eðlilega vaknað, hversu lengi hin ýmsu
hitasvæði muni geta enz.t sem orkugjafi. Sú staðreynd, að Geysis-
svæðið hefur verið virkt hverasvæði a. m. k. um 8000 ára ske'ð, bend-
ir til þess, að íslenzku hverasvæðin séu langlífari en sumir hafa
haldið.
Staðhæfing mín, að vikurlagið í sniði Barths sé miklu eldra en
Barth lielzt: gerir ráð fyrir, gæti í fljótu bragði virzt styðja þá ályktun
hans, að Geysir sjálfur sé mörgþúsund ára gamall. En ályktun Barths
byggist á þeirri forsendu, að kísillög'n í sniði því, sem hann mældi,
séu (ill mynduð af Geysi sjálfum, en ])að er hvorki sannað né einu
sinni sennilegt. Hæð Geysiskeilunnar yfir birkilaufalaglnu er um
1,6 m og milli þessarar keilu og undirlaga hennar, sem samkvæmt
mælingu Barths hallar um 5° inn að hvernum, virðist vera mislægi
(diskordans). Hin eiginlega Cieysiskeila er því allmiklu yngri en
vikurlagið X, þar eð myndun birkilaufalagsins og leirmoldarlagsins
elst í því hefur tekið langan tíma. Líklegt er, að Geysir og fleiri
liverir á G’eysissvæðinu hafi rutt sér veg upp í gegnum kísillög þau,
er sjá má í sniði Barths, í sambandi við eitthvert rask á svæðinu
og þá væntanlega í sambandi við mikinn jarðskjálfta. Og með
tilliti til athugana Trausta Einarssonar á kísilútl'ellingunni virð-
ist ekkert því til fyrirstöðu, að Geysir sé einn þeirra hvera, sem
Oddverja annáll segir hafa myndazt í sambandi við hinn mikla land-
skjálfta 1294.