Náttúrufræðingurinn - 1954, Síða 5
VÍRUSARNIR OG FRUMGRÖÐUR JARÐARINNAR
147
andi og þess dauða, að ekki verður hjá því komizt að hugleiða þann
möguleika, að þeir séu tengiliður á milli þessara tveggja heima.
Verður hér nú fyrst lýst helztu eiginleikum vírusanna, en síðan
athugaðir möguleikarnir fyrir því, að þeir séu hinn eiginlegi frum-
gróður jarðarínnar.
Hvað er vírus?
Vírus er latneskt orð og táknar eitur. Er sagt um Kleópötru hina
fögru, er hún réð sér bana, að hún hafi borið vírus úr egypzkri eitur-
slöngu í sár á handlegg sér. Einhver hefur stungið upp á því að kalla
vírusana eitrur á íslenzku, en ekki getur það talizt heppilegt orð.
Eitra er of líkt eitur, og það er svo margt eitrið. Vírusarnir hafa líka
stundum verið nefndir huldusýklar á íslenzku. Ekki verður þó séð,
að virusar séu svo miklu huldari sjónum manna en margir gerlanna,
að þessi nafngift eigi rétt á sér. Nafnið veira hefur lika verið notað
á þennan lífveruflokk i islenzku máli, en það virðist ekkert hafa
framyfir orðið vírus, nema tilgerðina. Orðið vírus fer vel í málinu
og beygist eins og primus.
Vírussjúkdómar á mönnum eru löngu þekktir, þó að orsök þeirra
væri ekki kunn fyrr en á þessari öld. Af þessum sjúkdómum hefur
bólusóttin verið illræmdust. Það merkilega skeði, að öruggt vopn
fannst gegn þessari drepsótt, án þess að sóttkveikjan væri þekkt.
Það var, sem kunnugt er, enski læknirinn Edward Jenner, sem árið
1796 fann upp bólusetninguna, en það er nú orðin alkunn ónæmis-
aðgerð, sem fyrst var notuð gegn bólusótt og ber nafn sitt af henni.
Um bólusóttarvírusinn vissu menn ekkert meira fyrr en nú á 20.
öldinni.
Sá, sem fyrstur benti á orsök vírussjúkdóma, var rússneskur grasa-
fræðingur, að nafni Ivanovski. Var það rétt fyrir síðustu aldamót,
eða nánar tiltekið árið 1892, en þá var Ivanovski að rannsaka tígla-
veiki tóbaksplöntunnar, sem er skaðræðissjúkdómur, þar sem ræktað
er tóbak. Skömmu áður hafði í Þýzkalandi verið fundin upp Berke-
feld-sían, en hún er gerð úr samanpressuðum díatómeu-leir, eða bama-
mold, og er svo fíngerð, að ekki smjúga hana einu sinni smávöxnustu
gerlar. Ivanovski síaði nú safa úr sýktum tóbaksblöðum í gegnum
Berkefeld-síu og fékk þannig tíeran vökva, sem ekki voru í neinir
gerlar. Vökva þennan bar hann svo á blöð heilbrigðrar tóbaksplöntu,
og það merkilega skeði, þau veiktust af tíglaveiki.
Sex árum seinna, árið 1898, sýndu Þjóðverjarnir Löffler og Frosch