Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 48

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 48
188 NÁTTtJRUFRÆÐINGURINN andi sýnishorn (sjá Fylgiblað II, sem sýnir, hvernig eyðublaðið lítur út, er það hefur verið útfyllt og tegundin ákvörðuð). Þegar eyðublaðið hafði verið fyllt út fyrir hvert tré, voru plúsarn- ir lagðir saman í hverjum tegundardálki. I stuttum texta neðst á eyðublaðinu var reynt að gera eins konar mat á hinum ýmsu ein- kennum og sömuleiðis tekið tillit til næfralitar og bollögunar trésins, og þannig ályktað, um hvaða tegund væri að ræða í hvert sinn. Ef plúsafjöldi var yfirgnæfandi í vissum tegundardálki, var það látið ráða. Þegar plúsafjöldinn var jafnari í fleiri tegundadálkum, var annað hvort talið vera um að ræða bastarð milli tveggja, sem virtust hafa álíka marga plúsa, eða stundum engin tegund ákvörðuð. Þegar nafngreindir eru á þennan hátt margir tugir sýnishorna í einu, getur vitaskuld verið, að í ljós komi skortur á samkvæmni við greininguna. Þetta stafar af þvi, að þegar um er að ræða sum ein- kenni, svo sem tönnun blaða, tánnlögun og blaðodd, getur verið erf- itt að dæma hlutlægt. Dómur manns getur orðið fyrir áhrifum af fyrstu augnablikssýn á blaðið, þar eð manni hættir þá oft við að láta sér detta í hug einhverja ákveðna tegund. Svo vel vildi til, að sumarið 1950 bar birkið í Hallormsstaðarskógi mikið fræ. Þess vegna voru kvenreklar á langflestum sýnishornum. Fáein sýnishorn höfðu þó enga kvenrekla. Er ljóst, að nafngreining þeirra er mun óábyggilegri en hinna. Samt reyndi ég að nafngreina þau eftir blöðum og sprotum eingöngu og reiknaði þau með í töflu I, sem sýnir skiptingu sýnishornanna í tegundir og bastarða. Yfirleitt notaði ég til nafngreiningar sýnishornið úr miðri krónu. En þar sem engir kvenreklar voru á þessu sýnishorni, en fundust hins vegar á sýnishorninu úr toppi krónunnar, notaði ég að sjálf- sögðu hið siðarnefnda. Að öllu samanlögðu verður að hafa fyrirvara á nákvæmni þess- arar nafngreiningaraðferðar. Enda ber að skoða hana sem tilraun. Hér má þó skjóta inn, að Roll-Hansen, dósent, skýrði mér frá því, er hann hafið lesið ritgerð þessa og borið sýnishornin, sem ég lét fylgja með henni, saman við eyðublöð þau, sem ég útfyllti fyrir hvert tré, að hann teldi aðferðina fullgóða og hvatti mig til að gera eftir henni víðtækari athuganir á íslenzku björkinni. Steindór Steindórsson frá Hlöðum, sem hefur lesið yfir ritgerðina. telur einnig, að gaman gæti verið að taka birkið hér til víðtækari rannsóknar á sáma grund- velli og hér er gert.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.