Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 18

Náttúrufræðingurinn - 1954, Blaðsíða 18
160 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN í 1177 hreiður, en upp á eyjuna varð ekki komizt, en þar voru áætl- uð 9700 hreiður. Alls 10877. Með í förinni var Árni Stefánsson, og tók hann ágætar myndir af sjó. Af samanburði mynda Árna Stef- ánssonar og þeirra, sem nú var talið eftir, sést, að mikil aukning er utan í. Eins og kunnugt er, var Eldey friðuð árið 1940 með sérstökum lögum, en áður höfðu Vestmannaeyingar árlega farið þangað til að taka súluunga. Á árunum 1910—1939 voru teknir þar að meðaltali 3257 súluungar á ári. Vestmannaeyingar, sem farið hafa í Eldey til súlna (venjulega í lok ágúst), hafa sagt mér, að þá hafi alltaf verið þó nokkuð flogið af unga, og aldrei var venja að slá nema fullgerð- an unga. Meiri hluti unga mun því árlega hafa komizt undan súlu- keppum veiðimanna. Á þeim 14 árum, sem liðin eru frá því, er súluungar voru síðast „slegnir" í Eldey, hafa eigi að síður um 45500 ungsúlur ba'tzt við súlustofninn vegna friðunar Eldeyjar. Friðunin kemur meðal annars fram í því, að byggðin utan í hefur tvöfaldazt frá 1939 til 1949, og er 1953 sexfalt meiri. Eldeyjarfarar hafa sagt mér, að ofan á væri auður blettur, frá því að sótt var súludrit í Eldey 1911. Engan blett var hægt að sjá auðan ofan á á hinum ágætu myndum frá 1953. Utan í er enn hægt að benda á syllur, sem gætu verið þéttar setnar, t. d. á tveimur neðstu stóru syllunum að SA, þar sem einstaka súlur eru komnar inn í svartfuglabæli. Viðkoman í Eldey mun þvi innan fárra ára hafa áhrif á vöxt annarra súlubyggða eða verða vísir að nýjum súlubyggðum. SUMMARY: A census of the Gannet population on Eldey. On the 7th of July 1953 a U.S.A. Navy aircraft took photographs of Eldey from different angles. These pictures were enlarged and a counting of the gannets made from them. Each visible gannet was counted as a breeding pair except where two were sitting close together. The counting result was as follows: Top plateau 11634 breeding pairs Cliff faces 3544 — — Total 15178 breeding pairs According to this result it is of no doubt any longer that Eldey is occupied by the largest colony of the North Atlantic Gannet (Sula bassana) in the world. The first accurate census of the gannet colony of Eldey was made in 1939, when 8700 nests were counted on the top plateau and 628 nests on the cliff faces. 1 he second census was made in 1949. This time it proved impossible to climb to the top of Eldey, but the number of breeding pairs on the top plateau was estimated at 9700. On the cliff faces 1177 pairs were counted.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.