Náttúrufræðingurinn - 1954, Side 37
ISLENZKIR FUGLAR X
179
ef til vill vegna mikillar fjölgunar og þar af leiðandi þröngbýlis
annars staðar á landinu. Hin síðari sumur hefur þannig talsvert orð-
ið vart við svartbak við Veiðivötn á Landmannaafrétti, en þar sáust
aldrei svartbakar áður fyrr. Að því er ég bezt veit, hafa hreiður þó
ekki fundizt þar enn sem komið er. Guðmundur Kjartansson, jarð-
fræðingur, hefur þó tjáð mér, að sumarið 1952 hafi fundizt svart-
bakslireiður í hólma i Tungnaá, hjá Hófsvaði, sem er skammt frá
vötnunum. I Þjórsárverum við Hofsjökul var einnig talsverður slæð-
ingur af svartbak sumarið 1951, er ég ásamt fleirum dvaldist þar um
5 vikna skeið. Það er þó enn ósannað mál, hvort þeir eru farnir að
verpa þar, þvi að hreiður eða unga fundum við aldrei.
Mjög víða hér á landi verpa svartbakar einn og einn út af fyrir
sig, en víða verpa þeir líka í byggðum. Þéttustu svartbakavörpin eru
í hólmum í ám og vötnum. I stærstu svartbakavörpum hér á landi
skipta varppörin hundruðum. Hreiður svartbaksins er talsvert fyrir-
ferðarmikið og oft ekki óhaglega gert. Hreiðurlautin er venjulega
25—30 cm að þvermáli og 7—9 cm djúp. Hreiðrið er gert úr mosa,
stráum og blöðum ýmissa grasa, svo og þangi og þara, allt eftir því,
hvað nærtækast er á hverjum stað. Oftast er líka fleiri eða færri stór-
ar fjaðrir að finna meðal hreiðurefnanna. Eggin eru venjulega 3,
mjög sjaldan aðeins 2. Þau eru ljósgrængrá, steingrá eða grábrún
með dauffjólubláum grunnblettum og dökkbrúnum blettum og dílum.
Ljósblágræn egg með fáum eða jafnvel engum dökkum dilum eru
ekki óalgeng. Varptími svartbaksins er í maí. 1 meðalári mun hann
þó sjaldan vera fullorpinn fyrr en um miðjan mai. 1 veðursælum
héruðum og þegar vel vorar, hefst varpið nokkru fyrr, jafnvel síðast
í apríl, en á útkjálkum og i köldum vorum getur varpinu hins vegar
seinkað til muna, jafnvel fram í maílok. Talið er, að útungunartími
svartbaksins sé tæpar 4 vikur (26—28 dagar). Bæði hjónin skiptast
á um að liggja á eggjunum, og bæði annast þau um fæðuöflun handa
ungunum, meðan þeir eru ófleygir. Talið er, að ungarnir verði fleyg-
ir, þegar þeir eru 8 vikna gamlir.
Svartbakurinn er vafalaust að langmestu leyti staðfugl hér á landi.
Merkingarnar liafa þó sýnt, að hami er ekki mjög staðbundinn. Ung-
fuglar og fullorðnir fuglar utan varptímans flakka víða um í ætisleit
og það jafnvel landshornanna á milli. Ég tel líka ekki ósennilegt, að
svartbakar frá N. og NA. landi leiti að einhverju leyti til S. og SV.
lands yfir háveturinn. Merkingamar hafa auk þess sýnt, að hluti af
íslenzka svartbakastofninum leitar til suðlægari landa á veturna.