Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 14

Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 14
60 NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN Fegurð og yndi íslenzks sveitalífs er dregið i'ram í skýrum mynd- um. Eggert vill sýnilega bæði hvetja og mennta þjóðina með kvæð- um sínum, enda eru mörg þeirra fræðilegs eðlis, og kemur náttúru- fræðiþekking hans þar mjög fram, en einkum þó ást hans á gróðri landsins og landgæðum. Löngum hefur Búnaðarbáfkur verið tal- inn eitt fremsta kvæði Eggerts, og víst er, að þar og í kvæðinu Island, sem er eins konar yfirfit um sögu landsins, koma lífsskoð- anir hans skýrast fram. Óvíða eggjar hann þjóð sína meira til dáða og að baki er siðræn alvara, sem raunar er löngum undiralda í kveðskap lians. En þótt kvæði Eggerts séu oss nútímamönnum lítt að skapi sem lesefni, urðu þau um langt skeið aflvaki í íslenzku Jrjóðlífi, og áhrif þeirra allvíðtæk. En Eggert Ólafsson lagði á enn fleira gjörva hönd. íslenzk tunga var lronum kær og viðhald hennar og endurreisn var eitt helzta áhugamál hans. Gerði hann miklar tilraunir í þá átt og samdi meðaf annars allmikið rit um íslenzka réttritun, er hann vildi að upp yrði tekin. í Jrví máli kemur greinilega fram ást hans og dýrkun á fornöldinni, fyrndi hann ritháttinn svo mjög, að oss nú Jrykir jaðra við fulla sérvizku og öfgar. Ekki mun réttritun hans hafa hfotið fylgi manna, enda varla við því að búast eins og frá lienni var gengið. Var ritgerð hans aldrei prentuð, en mun hafa borizt nokkuð milli manna í handritum. A Hafnarárum Eggerts var mikið mannval íslenzkra stúdenta við háskólann. Viðreisnarhreyfingar og menntastefnur aldarinnar snurtu þá, og margir þeirra urðu gagnteknir af þeim anda að hefja íslenzka þjóð til meiri velmegunar og menningar. Félagsskap höfðu þeir með sér, er Sakir nefndist. Voru Joeir Eggert og bræðuv hans, sem allir voru kenndir við Svefneyjar, þar forystumcnn. Að vísu voru Sakir eins konar skemmtifélag, en Ijóst er þó, að undir- alda félagsskaparins er Jijóðleg vakning, og mjög voru reglur þeirra í fornum stíl. En hér fór sem oftar meðal íslendinga, að Jreir báru ekki gæfu til samjrykkis. Flokkadrættir mögnuðust í stiidentahópn- um, og eru þar oft nefndir tveir flokkar, Bændasonaflokkur undir forystu Svefneyjabræðra og Biskupssonaflokkur, Jrar sem Hannes Finnsson, síðar biskup, og bræður hans voru í fararbroddi. Vafa- lítið hafa persónuleg sjónarmið og ólík skaphöfn valdið nokkru um sundurþykkju þessa. í báðum flokkum voru einlægir ættjarðar- vinir og umbótamenn, en sitt sýndist hvorum flokki um leiðir til

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.