Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 15
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
61
4. mynd. Skor. Þaðan lagði Eggert í hinztu íör sína.
umbóta, þótt keppt væri að sama marki. Hannesarmenn litu meira
til umheimsins og vildu veita erlendum menningarstraumum til
landsins og hefja viðreisn þess á þeim grundvelli. Blöskraði þeim
að vonum, hversu mjög Islendingar höfðu dregizt aftur úr öðrum
þjóðum. Höfðu þeir ótrú á fornaldardýrkun Eggerts og því, að ætla
að reisa þjóðina við á þeiin grunni, sem hin forna menning gaf.
En í ritum og störfum Eggerts er hinn rauði þráður aðdáun og
hollusta við fornar venjur, og að þjóðin megi verða sjálfri sér nóg
á sem flestum sviðum. Þetta kemur iram jafnvel í hinum ólíkleg-
ustu ritum hans, svo sem Réttritunarbókinni og Brúðkaupssiða-
bókinni. í hinni fyrri leitast hann við að færa málið í fornan
búning, en liina síðari ritar hann til þess að teknar verði upp
fornar venjur á hátíðlegum stundum. Fór og brúðkaup hans sjálfs
fram með þeim hætti. Lachanologian, sem er leiðbeining um garð-
yrkju, og Drykkjabókin, eru báðar leiðbeiningar um, hversu hag-
nýta megi íslenzkar jurtir og efni til matar og drykkjar. Ekkert
þessara rita hefur þó verið prentað nema Lachanologian, sem síra