Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 22
68
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Þessi lótus og önnur skyld tegund voru málaðar á musterisveggi
í Egyptalandi fyrir um fjögur þúsund árum. Hafa fundizt myndir
af Faraó með lótusblóm sem höfuðdjásn. Lótusjurtir við Nílarfljót
og víðar voru einnig hagnýttar til matar. Hinn hnútótti jarðstöng-
ull er mjölvisríkur líkt og kartöflur.
í garðtjörnum er sums staðar erlendis ræktuð hin undurfagra
himinbláa nykurrós (N. gigantea) frá Ástralíu og íran. Blóm-
in blá, ilmandi og allt að 30 cm í þvérmál. Hið bláa indverska
lótusblóm (Nymphaea stellata) er frægt frá fornu fari. Finnast
af því ævagömul málverk, tengd trúnni á Brama og Búdda. Rauð-
blómgaðar nykurrósir vaxa einnig í Indlandi. Geta blóm nykur-
rósa þannig verið hvít, gul, blá og rauð.
Lótusblómin frá Indlandi og Egyptalandi teljast til nykurrósa-
ættarinnar. En til eru einnig önnur „lótusblóm“ af annarri ætt,
Nelumbo. Blöð þeirra eru skjaldlaga og standa upp úr vatninu á
löngum stilkum. Blómin fögur með mörgum bikar- og krónublöð-
um. Þessi Nelumbo-ætt var algeng víða um heim á tertiertíman-
um, en nú eru aðeins tvær tegundir eftir. Það eru hin gulblómgaða
Nelumbo lutea í Norður-Ameríku og N. nucifera eða N. Nelumbo,
sem ber rósrauð blóm og vex frá Japan til Norðaustur-Ástralíu
og Kaspíahafs. Er sótzt eftir henni í garðtjarnir og hefur svo verið
í 30 aldir eða meir. Hún er líka tengd ýmsum trúarbragðasiðum
í Asíu, t. d. Búddatrú, og hefur þess vegna lengi verið ræktuð við
musteri í Kína og víðar. Nelumbo nelumbo er oft nefnd ekta
lótusblóm og átti að gefa þeim, sem neyttu hennai', þægilega
gleymsku. Blöðin eru kringlótt og standa á 1—2 m háum stilkum,
með mjólkursafa í. Milli blaðanna koma fram rósrauð blóm, um
30 cm í þvermál. Fræin eru stór og þyngri en vatn. Þau virðast
geta spírað mörg hundruð ára gömul. Hinn gildi jarðstöngull er
mjölvisríkur og er etinn hrár eða soðinn, saltaður eða í ediki. Fræ-
in eru einnig etin hrá, soðin eða glóðarsteikt, eftir að hið beiska
kím hefur verið tekið burt. Kímið er notað til lyfja gegn hitaveiki,
þarmsjúkdómum o. fl., og er í því eitrað efni, nelumbin. Ung blöð
og blaðstilkar, blómhlíf og fræflar er einnig etið. Seyði jurtarinn-
ar er notað til lyfja. Hinn öfug-keilulaga blómbotn með stilk er
notaður til skreytinga, t. d. sem jólaskraut.
Lótusblóm eru oft nefnd í bæði gömlum og nýjum bókmennt-
um og hafa lengi haft á sér frægðarorð. Fögrum, austrænum kon-