Náttúrufræðingurinn - 1968, Síða 35
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
81
vegna mjög mikillar kennslu og stjórnarstarfa. Ég bendi á þetta,
til að menn geti gert raunsærri samanburð á aðstöðu í mennta-
skóla og háskóla. Og sem dæmi um möguleikana við lægri skóla
get ég tekið viðurkenndan vísindamann í íslenzkum fræðum, sem
til æviloka kenndi í gagnfræðaskóla og að sögn hafnaði háskóla-
kennslu.
Stundum hefði ég kosið að vera laus við kennslu, en á hinn bóg-
inn hefi ég fundið jákvætt gildi kennsluskyfdunnar, og varðandi
gildi hennar almennt fyrir rannsóknir má nefna þessi atriði: 1)
Aukin hvatning til að tileinka sér þekkingu þegar það þjónar
tvennum tilgangi, rannsóknum og kennslu. 2) Rannsóknarstörf
geta verið þreytandi og einhæf og sii spurning getur oft sótt á
menn, hvort þeir séu að sóa tíma í vonlaust verk. Kennsla veitir
tilbreytingu og þá fullnægingu, setn fylgir reglubundnu starfi. 3)
Kennsla veitir hugmyndir og knýr á um rannsóknir. Sumir
fremstu vísindamenn hafa þakkað það kennsluskyldu, að þeir
gerðu ýmsar merkar uppgötvanir.
Ég heyri talsvert talað um það, að ungir menn líti á kennslu
sem algert neyðarbrauð fyrir vísindamenn og telji óskipt starf í
faginu hið eina, sem viðhlítandi sé. Vafalaust er það talsvert ein-
staklingsbundið, hvaða starfsskilyrði henti bezt, en ég er hér að tala
um kennslu sem verulegan hfuta af starfi manna og fjalla um
ofangreinda afstöðu í því sambandi. l>á er þess fyrst að geta, að
á skólaárum og stridentsárum mun fáa dreyma um kennarastarf og
það tekur menn nokkurn tíma að breyta viðhorfi námsmannsins
í viðhorf kennarans. En þegar sú breyting er um garð gengin, álít
ég að menn sjái hinar jákvæðu hliðar og geti, ef vilji er fyrir liendi,
skapað sér að verulegu leyti þau starfsskilyrði, sem þeir fella sig
við. Að því leyti er snertir rannsóknarstörf, er nauðsynlegt að
stjórn kennslumála skilji ástandið og greiði fyrir slíkum störfum.
Þyrfti að koma á því fyrirkomulagi, að menn ættu kost á ársfríi
t. d. á sjö ára fresti. Fyrsta ársfríið ætti þó að standa til boða-eftir
eigi lengri tíma en 4 ár, svo að menn slitnuðu síður úr tengslum
við fræði sín. En skilyrði fyrir svona fríum ættu að vera þau, að
viðkomandi menn hefðu sýnt getu sína sem vísindamenn að dómi
þar til kvaddra manna.
Ég sagði, að stjórn kennslumála þyrfti að skilja þetta mál, vegna
þess að það er hún, sem verður að laða menn til hinna þjóðnauð-