Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 42
88
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
jarðvísinda. Önnur skipting er að skipta jarðfræði í tvennt í hag-
nýta jarðfræði og grundvallarrannsóknir. Flestar e£ ekki allar
greinar jarðfræði geta orðið hagnýtar en hagnýtri jarðfræði má
aftur skipta niður í rannsókn og leit að hagnýtum jarðefnum ann-
ars vegar og verkfræðilega jarðfræði liins vegar, og er þá því sem
næst komið að þeirri grein, sem ég mun ræða um, eða virkjana-
jarðfræði.
Jarðfræðilegar upplýsingar til hönnunar og bygginga mannvirkja
er verkfræðileg jarðfræði. Áhugasvið verkfræðilegrar jarðfræði í
sambandi við mannvirki er venjulega frekar þröngt bæði niður á
við og í flatarmáli. Niður á við er það oft ekki nema allra efstu
lögin, jafnvel ekki nema lausu lögin ofan á klöpp, og sjaldan þarf að
þekkja jarðfræði í þessu sambandi dýpra en 200—300 m undir yfir-
borði. Að flatarmáli er áhugasvið verkfræðilegrar jarðfræði það
svæði, sem mannvirkið er á, og getur haft áhrif á. Innan mann-
virkjasvæðis og áhrifasvæðis þess þarf jarðfræðin að vera mjög vel
þekkt.
Stærstu mannviiki í heiminum í dag eru ýrnsar stíflur með
uppistöðidónum þeim, sem ofan við þær myndast. Skapast þar
fjölþættari og meiri jarðfræðileg vandamál en við nokkur önnur
mannvirki. Auk þess eru oft í sambandi við virkjanir gerð jarð-
göng og stöðvarhús höfð neðanjarðar. Þetta allt veldur því, að
jarðvirkjanajarðfræði er flóknust og fjölþættust allra verkfræðilegra
jarðfræðigreina. Vandamál jrau, sem jarðfræðiranusóknir virkjana-
jarðfræðingsins eiga að lijálpa til við að leysa og meta, eru helzt:
1. stöðugleiki undirstaða; 2. leki og vatnstap úr uppistöðulónum;
3. aðstæður við gerð jarðganga og annarra neðanjarðarmannvirkja;
4. leit að byggingarefnum í steypu og fyllingarefni í stíflur.
Virkjanajarðfræðingur getur aldrei unnið einn. Hann er hluti
af keðju þeirri, sem hanna á og byggja mannvirkin. Hann vinnur
með verkfræðingum, sem alltaf verða að bera aðalábyrgðina á sjálfu
mannvirkinu. Það er því mjög nauðsynlegt, að verkfræðingur og
jarðfræðingur skilji hvorn annan, en oft eru töluverðir vankantar
Jrar á, Jrví hugsunarháttur sá, sem námið kennir, er mjög ólikur.
Starfi virkjanajarðfræðings er hægt að skipta niður í uokkur
stig eftir byggingarstigi virkjunar. Á fyrsta stigi, sem er í sambandi
við lauslegar áætlanir um virkjun, eru gerðar lauslegar jarðfræði-
athuganir og jarðfræðikort af virkjunarstað. Val korteininga á