Náttúrufræðingurinn - 1968, Síða 49
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
95
landi og landgrunni eftir hljóðhraða, og er þess vænzt, að mælingar
þessar geti gefið til kynna, hve djúpt grunnvatn streymir undir
landinu.
Loks hafa verið gerðar alhliða rannsóknir á háhitasvæðum, t. d.
Hengilssvæði, Krýsuvík, Reykjanesi og Námafjalli, en líklegt er,
að þessi svæði verði einna fyrst virkjuð til raforkuvinnslu og iðn-
aðarnota. Við þessar athuganir hefur m. a. verið höfð samvinna
við erlenda aðila um mælingu innrauðrar varmageislunar frá há-
hitasvæðum og mælingar á smáskjálftum, sem virðast einkum eiga
upptök undir þeim.
Gera má ráð fyrir, að með aukinni virkjun jarðhita þurfi að
fylgjast vel með öllum breytingum á jarðhitanum, og yrði þar
jöfnum höndum beitt verkfræðilegum, jarðefnafræðilegum og jarð-
fræðilegum aðferðum.
Nánari lýsingu á starfsemi jarðhitadeildar er að finna í ársskýrsl-
um deildarinnar fyrir árin 1966 og 1967, sem birtust í Orkumál-
um nóv. 1967 og apríl 1968.
Eitt megineinkenni á starli deildarinnar hefur verið fjöldi laus-
ráðinna sumarstarfsmanna. Hafa það einkum verið stúdentar, senr
eru við nám í jarðfræðum og öðrum raungreinum, og má ætla,
að þessi vinna hafi orðið þeim til mikils gagns í náminu. Þar sem
mestur hluti jarðhitarannsókna fer frarn úti við að sumarlagi og
margar mælingar þarfnast hópvinnu, má gera ráð fyrir, að jressi
liður starfsins haldist að mestu óbreyttur, enda jrótt föstu starfs-
liði deildarinnar kunni að fjölga nokkuð. Ekki er auðvelt að spá
um fjölgun í föstu starfsliði. Er hún mjög háð þróun virkjunar-
mála. Þó er líklegt, að innan skamms verði bætt við einum jarð-
efnafræðingi og einum jarðeðlisfræðingi. Rétt er að leggja áherzlu
á, að jarðhitarannsóknir eru svo margþættar, að þær krefjast hóp-
vinnu sérfræðinga með mismunandi menntun. Það er því ekki fyrr
en á síðustu árurn, að deildin er orðin nægilega vel mönnuð til að
sinna þeim margbrotnu verkefnum, sem að kalla.
Það hel'ur verið happ deildarinnar, að hún hefur notið mjög
góðrar skrifstofuþjónustu og ágæts bókakosts, en hvort tveggja er
nauðsynlegt til þess að starfskraftar sérfræðinga fái notið sín sem
skyldi. Þyngst á metunum mun þó vera framsýn og larsæl stjórnun
orkumálastjóra.