Náttúrufræðingurinn - 1968, Page 51
NÁT T Ú RUFRÆÐINGURINN
97
4. mynd. Gvendarbrunnar. Myndin er tekin vorið 1960.
hæf. Líklegt virðist mér, að hliðstæð rannsókn úr öllum vatnsból-
um landsins mundi sýna mun lakari útkomu. Mjög víða er neyzlu-
vatn ennþá tekið úr tjörn eða læk, en reynslan er sú, að slík vötn
eru meira eða minna menguð, einkum þegar kemur fram á sumar.
Niðurstaðan verður því sú, að yfirborðsvatn cetti eltki að hafa til
neyzlu, ef annars er kostur.
Grunnvatn
Á síðari árum hefur mjög farið í vöxt að afla neyzluvatns með
borunum, þ. e. að nota grunnvatnið sjálft. Þá er um tvo möguleika
að ræða: a) Að afla vatnsins með borunum í fast berg. b) Að afla
þess með borunum í laus jarðlög.
a) Möguleikar til vinnslu vatns úr föstu bergi eru mjög háðir
jarðfræðilegum aðstæðum á hverjum stað. Hvað þetta áhrærir er
mikill munur á tertíeru blágrýtismynduninni annars vegar og
yngri bergmyndunum hins vegar.
Reynsla af borunum í blágrýtismyndunina eftir köldu vatni er
mjög neikvæð svo langt sem hún nær, og virðist yfirleitt ekki hægt
að gera sér vonir um meiri liáttar vatnsvinnslu úr þeirri berg-