Náttúrufræðingurinn - 1968, Side 53
NÁTTÚRU FRÆÐ 1 N GURIN N
99
indi frá því að komast niður í grunnvatnið, en ekki þó þéttari en
svo, að gott rennsli náist inn í borholuna.
Malarásar eru fremur sjaldgæfir hér á landi, en geia góða mögu-
leika til vatnsvinnslu þar, sem svo hagar til. Búðardalur virðist
vera eini staðurinn hér á landi, sem fær neyzluvatn sitt úr malarási.
Geta má þess, að sums staðar má fá gott neyzluvatn undan þykk-
um skriðum, en að sjálfsögðu er vatnsmagnið að jafnaði takmarkað
og háð stærð aðrennslissvæðisins. Hætta er og nokkur á, að slík
vatnsból geti mengazt, því oft eru skriðurnar úr mjög grófu efni.
Að sjálfsögðu verður að dæla vatninu upp úr borholunum. Ekki
er mér kunnugt um nema einn stað hér á landi, þar sem kalt vatn
rennur upp úr borholum, en það er í Garðahreppi. Það vatn
kemur úr þykkri bólstrabergsmyndun.
Um rnargra áratuga skeið hefur Ásgeir L. Jónsson verið vatns-
virkjaráðunautur Búnaðarfélags fslands og hefur leiðbeint bænd-
um einkum á Suður- og Austurlandi um val vatnsbóla og rnælt
fyrir vatnsveitum á fjölda staða. Hefur hann á því sviði unnið
mikið og gott starf. Á sama hátt helur Björn Bjarnason, einnig á
vegum B. í., verið til leiðbeiningar, aðallega á Vestur- og Norður-
landi. Pálmi Einarsson, landnámsstjóri, vann og á sínum tíma mikið
að þessum málum.
Hin síðari ár hefur það að langmestu leyti komið í hlut jarðhita-
deildar Orkustofnunar að sjá fyrir jarðfræðilegum athugunum í
sambandi við leit að neyzluvatni og að benda á staði þar, sem
ráðlegt væri að bora. Jarðboranir ríkisins hafa nær eingöngu fram-
kvæmt boranirnar.
Segja má, að vatnsöflun á þennan hátt hafi yfirleitt heppnazt
vel, og nú taka yfir 25 bæjar- og sveitarfélög neyzluvatn sitt að
miklu eða öllu leyti úr borholum, og fleiri bætast við árlega.
Auk þess hefur fjöldi einstaklinga og fyrirtækja aflað sér vatns
með jressu móti, bæði til neyzlu og til iðnaðar. Þó eru ennþá, bæði
til sjós og sveita, í notkun vatnsból, sem í rauninni eru öldungis
ónothæf.