Náttúrufræðingurinn - 1968, Síða 54
100
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
Rannsóknir á lausum setlögum —
ofaníburður og steypuefni
Sverrir Sch. Thorsteinsson:
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins
Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins var stofnsett árið 1965.
Byggingarannsóknir í þágu atvinnuveganna voru áður í höndum
Byggingardeildar og Iðnaðardeildar Atvinnudeildar Háskólans.
Fyrsti jarðfræðingurinn, Tómas Tryggvason, var ráðinn til þess-
arar stofnunar árið 1946, þar sem hann starfaði til dauðadags
(1965). Fólust störf Tómasar einkum í hagnýtum jarðfræðiathug-
unum á verðmætum jarðefnum, svo sem kísilgúr, perlusteini, leir
til leirkeragerðar og gjalli og vikri sem einangrunarefni. Ennfremur
annaðist hann ýmsar jarðfræðiathuganir vegna virkjanafram-
kvæmda, sem nú eru í höndum annarra aðila.
Árið 1957 var Sverrir Sch. Thorsteinsson ráðinn til Iðnaðardeild-
ar Háskólans til könnunar á gæðum, dreifingu og magni lausra
jarðseta með tilliti til mannvirkjagerðar, þ. e. til ofaníburðar og
sem steypuefni.
Sögulegt um vegamál
Fyrsta vegakerfið hér á landi var mótað af íslenzka hestinum.
Fyrstu reiðgöturnar lágu milli bæjanna, frá bæjunum í þorpin við
sjávarsíðuna og með ströndum fram, allt í kringum landið. Fljót-
lega urðu mannaferðir yfir hálendið, milli jökla, fastur liður í
lífi þjóðarinnar. I fjórar aldir, frá upphafi byggðar landsins, þróað-
ist vegakerfið án beinnar íhlutunar mannsins. Það er i Jónsbók,
sem f'yrst vottar fyrir reglugerð unt vegi og vegaviðhald, en ekki
mun liafa komið til neinna framkvæmda, fyrr en nokkrum öldum
seinna. Með Landsnefndinni svokölluðu, sem skipuð var með kon-
ungsúrskurði 20. marz 1770, var stigið spor í rétta átt. Meðal annars