Samvinnan - 01.05.1949, Síða 50
1. röð frá vinstri: Hafliði Eiriksson, Methúsalem Stefánsson, Gaðm. V. Hjálmarsson, Björn Stefánsson, Konráð Jónsson, Helga Karls-
dóttir, Harry Frederiksen, Leifur Þórhallsson, Jón Björnsson og Si< urður Benediktsson. — 2. röð frá vinstri: Steingrimur Þórisson, Bald-
vin Þ. Kristjánsson, Haukur Jósefsson, Helgi Þorsteinsson, Þorkell Skúlason, Þorvarður Arnason, Erlendur Einarsson, Lúðvik Jónsson,
Ebenezer Guðjónsson, Björn Guðmundsson og Þorsteinn Stefánsson. — 3. röð frá vinstri: Óskar Jónsson, Ólafur Sverrisson, Lúðvik Hjalta-
son, Benedikt Kristjánsson, Kristleifur Jónsson, Karl Stefánsson, Pétur Einarsson, Kjartan Ólafsson, Guðmundur Jónsson, Skúli Jónasson,
Björn Vilmundarson og Einar Vernharðsson. — Á myndina vantar: Ingimar Ingimarsson og Lilju Hjartardóttur. Ennfremur Kristin Hall-
grimsson, Björn Jónsson og Hermann Þorsteinsson, sem starfandi eru á skrifstofum S. I. S. erlendis.
SAMVINNUSKÓLASLIT
- 30. ÁRGANGURINN ÚTSKRIFAST -
SAMVINNUSKÓLANUM var sagt
upp að kvöldi föstudagsins 29.
apríl síðastliðinn.
Skólastjórinn, Jónas Jónsson, flutti
athyglisverða skólaslitaræðu; ávarpaði
nemendur og benti þeim á heillavæn-
legar lífsreglur. Þá þakkaði hann þeim
samveruna og kennurum samstarfið,
— einkum yfirkennaranum, Guðlaugi
Rósinkranz, er nú lætur af störfum
fyrir skólann, eftir 19 ára samfellda
þjónustu.
Þá flutti Guðlaugur Rósinkranz
ræðu; kveðjuorð til nemenda, sam-
kennara og skólastjóra, sem hann
kvaðst fyrir sitt leyti eiga mikið upp
Elzti og yngsti „inspector“ Samvinnuskólans,
— feðgarnir Benedikt Gislason frá Hofteigi
(1918—1919) og Árni sonur hans (1948—49).
að unna, fyrir samvinnu á undanförn-
um árum.
Að loknum ræðum, afhenti skóla-
stjóri nemendum prófskírteini. Yfir
60 manns stundaði nám í Samvinnu-
skólanum á sl. vetri. Þrjátíu nemend-
ur luku fullnaðarprófi upp úr eldri
deild. Hæsta brottfarareinkunn hlutu
þeir Sigurður Sveinsson úr Reykjavík
8.59, Jóhann T. Björnsson frá Þing-
eyri, 8.56, og Björg Bogadóttir frá
Kópaskeri, 8.41. Aðrir 30 tóku bekkj-
arpróf upp í e. d. skólans. Hæstu eink-
unn meðal þeirra fengu Guðbrandur
Eiríksson, 8.08, Eiríkur Thorarensen,
8.02, og Guðmundur Kjartansson,7.91.
50