Samvinnan - 01.05.1949, Blaðsíða 53
Haraldur Hjdlmarsson, f. 20. des. 1909 að
Hofi á Höfðaströnd. Búfræðingur Hólum 1930.
í Samvinnuskólanum (e. d.) 1939—1940. Hefur
unnið í kjötbúðum samvinnufélaga síðan 1933,
fyrst á Siglufirði til 1945, en er síðan deildar-
stjóri í einni kjötbúð KRON í Rvík. Löngu
kunnur fyrir lausavísur sínar, en birtir hér í
fyrsta sinn kvæði á prenti.
He/gi Benediksson, f. 3. des. 1899 að Grenj-
aðarstað í S.-Þing.; ólst upp á Húsavík. í Sam-
vinnuskólanum 1919—1921. Atvinnurekandi í
Vestmannaeyjtim síðan. Hcfur látið smíða
mörg fiskiskip, sístækkandi; seinast (1946)
Helga Helgason, stærsta skip byggt hérlendis
(190 smál.). Hefur átt þátt í stofnun margra
fyrirtækja í Vestmannaeyjum, m. a.: Fisksölu-
samlags, olíusamlags, netagerðar (setið í stjórn),
dráttarbrautar, vinnslu- og sölumiðstöðvar fisk-
framleiðenda. Auk þess tekið þátt í mörgum
félögum kaupsýslu- og útvegsmanna í Vestm-
eyjum og landssamtökum. Hefur og látið til
sín taka í margs konar framfara- og menning-
arfélagsskap, t. d.: Fiskifélagsdeild, búnaðarfél.
(form. 1945—1948), sparisjóði (í stjórn frá upp-
hafi), tónlistarfél. o. fl. Sat í hafnarstjórn 1926.
í lýðveldisnefnd kaupstaðarins 1944. Einn af
forvígismönnum Framsáknarflokksins í Vcstm.-
eyjum; hefur verið fulltrúi á flokksþingum, í
miðstjórn (síðan 1946), í framboði í Vestmanna-
eyjum 1946; ritstjóri „Framsóknarblaðsins" síðan
1948.
Hjörtur Ó. Hjartar, f. 9. jan. 1917 á Þingeyri.
í Samvinnuskólanum 1935—37. Starfsm. Kaup-
félags Dýrfirðinga á Þingeyri 1931—37, nema
skólaveturna. Framkvæmdastjóri Kaupfél. Ön-
firðinga á Flateyri 1937—45 og síðan framkvstj.
Krupfélags Siglfirðinga. Á Flateyri átti hann
sæti í hreppsnefnd og stjórn hraðfrystihússins á
Flateyri, var og um skeið framkvæmdarstjóri
hraðfrystihússins Snæfell h.f. í stjórn Framsókn-
arfélags Siglufjarðar og hefur verið fulltrúi á
þingum flokksins.
Ingólfur Gunnlaugsson, f. 17. júní 1906 að
Sveðjustöðum í V.-Hún. í Samvinnuskólanum
1925—27. Gekkst þá fyrir stofnun Nemendasjóðs
Samvinnuskólans. Hefur lengst af stundað verka-
mannavinnu og átt heima í Rvík síðan 1932.
Réðst í júnímánuði 1947 til Efnagerðar KRON
og hefur verið þar afgreiðslumaður síðan. Félags-
inaður í KRON frá upphafi og fulltrúi á flest-
unt aðalfundum þess. Starfar mikið í verklýðs-
hrcyfingunni; í stjórn Verkamannafél. Dagsbrún-
ar í Rvík síðan 1946; hefur setið nokkur Alþýðu-
sambandsþing og skrifað töluvcrt í blöð og tíma-
ril um verklýðsmál. Fulltrúi Alþýðusambandsins
í Verðlagsncfnd landbúnaðarafurða 1947—48. í
framboði fyrir Kommúnistaflokk íslands í V.-
Hún. 1933 og 1934.
Jón Engilberts, f. 23. maí 1908 í Rvík. í Sam-
vinnuskólanum 1925—26. Nam málaralist í lista-
háskólunum í Khöfn og Osló. Hefur auk þess
unnið við söfn í Þýzkalandi, Hollandi og víðar.
Hefur sýnt málverk sín á öllum Norðurlöndum
og Englandi. Veittur heiðursstyrkur Van Goghs
af listaháskólanum í Khöfn 1939. Var annar í
röðinni, sem hlaut þann styrk. Hefur selt verk
sítr til ríkissafna íslands, Danmerkur, Svíþjóðar
og Finnlands; einnig fleiri erlendra listasafna. í
stjórn Fél. ísl. myndlistamanna nokkur ár og
ritari íslandsdeildar non-æna listabandalagsins.
Skreytti viðhafnarútgáfu Helgafells af ritum Jón-
asar Hallgrímssonar (1945); mun það verk al-
mennt talið sóma vel „listaskáldinu góða“ og
hefur hlotið mikið lof bókfróðra manna, bæði
innan lands og utan. Dvaldist að mestu leyti er-
lendis 1927—40, en hefur síðan verið búsettur í
Reykjavík.
Leifur Haraldsson, f. 6. júní 1912 í Reykjavík.
Ólst upp og átti heima á Eyrarbakka 1914—33.
í Laugarvatnsskóla (e. d.) 1933—34. í Samvinnu-
skólanum (e. d.) 1934—35). Vann hjá Kaupfélagi
Hrútfirðinga á Borðeyri 1940. Stundaði annars
lengst af hvers konar daglaunavinnu, unz hann
réðist til Bókaútgáfunnar Helgafells í júlí 1945;
hefur síðan unnið þar við handritalestur og
prófarka, þýðingar o. fl. Átti frumkvæði að stofn-
un Fél. ungra sjálfstæðismanna á Eyrarbakka
1930 og sat í stjórn þess til 1933. Sagði sig úr
Sjálfstæðisflokknum 1935. í stjórn U. M. F. Eyr-
arbakka nokkur ár, Nemendasambands Sam-
vinnuskólans 1937—38 og Eyrbekkingafélagsins í
Rvík síðan 1947. Hefur þýtt allmargar smásögur,
er birzt hafa í blöðum og tímaritum.
Páll Diðriksson, f. 8. okt. 1901 að Vatnsholti í
Grímsnesi. í Samvinnuskólanum árin 1920—22. í
Flólaskóla (nám í báðum deildum) 1925—26.
Vann hjá Kaupfélagi Grímsnesinga 1923—25.
Bóndi á Búrfelli í Grímsnesi síðan 1927. Trúnað-
arstörf: hreppsnefnd, sýslunefnd, stjórn Búnaðar-
sambands Suðurlands og Ræktunarsamb. Bisk-
tipstungna, Grímsness og Laugardals o. fl.
Ragnar Hjálmarsson Ragnar, f. 27. sept. 1898
að Ljótsstöðum í S.-Þing. í Samvinnuskólanum
1918—20. Starfsmaður Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík um skeið. Fluttist til Kanada sumarið
1921 og átti þar heima, unz hann settist að í N.-
Dakota í Bandaríkjunurri 1941. Hafði þá verið
þar áður nokkur sumur við söngstjórn meðal ís-
lendinga. Sumurin 1921 og 22 var hann við erf-
iðisvinnu, en stundaði píanónám á vetrum. Hóf
1923 píanókennslu, er hefur verið aðalstarf hans
síðan. Jafnhliða stjórnaði hann ísl. kórum (karla-
barna- ög sámkórum) frá 1936. Einnig söngkenn-
ari skóla í N.-Dakota, m. a. við nokkra mennta-
skóla. í Kanada hlutu allmargir píanónemend-
ur hans verðlaun og önnur heiðursmerki. Stjórn-
aði 1939 Karlakór íslendinga í N. Dakota á 50
ára afmæli Dakotaríkis. Aðstoðaði með Karlakór
íslendinga í Winnipeg við kvikmynd þá, er Kan-
adastjórn lét gera af íslenclingum þar í landi og
send var hingað heim og víðar. Tók mikinn þátt
í félagslífi Vestur-íslendinga; var m. a. um skeið
formaður þjóðræknisdeildarinnar „Fróns“ í Win-
nipeg. í her Bandaríkjamanna frá 1942 og gegndi
herþjónustu á íslandi 1943—45. Stjórnaði þá
Þingeyingakórnum í Rvík. Fluttist alkominn
heim, til ísafjarðar haustið 1948. Er nú forstöðu-
maður og kennari tónlistarskóla þar og söng-
kennari við barna-, gagnfræða- og kvennaskól-
ann. Sæmdur 1939 riddarakrossi Fálkaorðunnar.
Runólfur Sveinsson, f. 27. des. 1909 að Ásum í
Skaftártungu. Búfræðingur á Hvanneyri 1929.
í Samvinnuskólanum 1931—32. Landbúnaðar-
kandidat (cand. agr.) í Khöfn 1936.' Skólasijóri
bændaskólans á Hvanneyri og bústjóri 1936—47;
síðan sandgræðslustjóri og býr 1 Gunnarsholti á
Rangárvöllum. í hreppsnetnd nál. 10 ár. Nárns-
dvöl í Bandaríkjunum 1 ár (1944—45); kynnli sér
ýmis landbúnaðarmál, einkum búfjárrækt, véla-
nolkun og fræðslumál.
Sigrún Stefánsdóttir, f. 14. okt. 1898 að Eyja-
dalsá í Bárðardal. Gagnfræðingur á Akurcyri
1918. í Samvinnuskólanum 1919—20 (eldri dcild)
og Iauk fyrst kvenna burtfararprófi frá skólanum.
Dvaldist eftir það í Danmörku um skeið og var
í lýðháskólanum í Vallekilde eitt sumar. Gest-
gjafafrú í Borgarnesi 1925—40. Fluttist þá til
Rvíkur og stundar hannyrðakennslu.
Sigurður Steinþórsson, f. 11. okt. 1899 á Litlu-
strönd í Mývatnssveit. í Samvinnuskólanum 1919
—21. Starfsmaður Kaupfélags Þingeyinga á Húsa-
vík 1921—23. Framkvæmdastjóri Kaupfél. Stykk-
ishólms frá starfsbyrjun 1923 og síðan. í hrepps-
nefnd nálega 20 ár, skólanefndarform. nokkur ár.
í stjórn Útgerðarmannafél. Stykkishólms, Olíu-
samlags Breiðafjarðar, Bátatryggingar Breiða-
fjarðar og Skipasmíðastöðvar Stykkishólms. í lýð-
veldisnefnd héraðsins 1944. í stjórn Framsóknar-
félags Snæfellsness- og Hnappadalssýslu; ofl full-
trúi á þingum Framsóknarflokksins og á nú sæti
í miðstjórn hans.
Skúli Guðjónsson, f. 30. jan. 1903 að Ljótunn-
arslöðum við Hrútafjörð og heftir alið þar allan
aldur sinn, nema veturinn 1927—28, er hann var
í Samvinnuskólanum. Bóndi síðan 1936, en segir
svo sjálfur frá um önnur störf s(n: „Auk búskap-
arins hef ég fengizt við vegagerð, smíðar og ýmis-
legt annað, er einum smábónda hefuriinátt vcrða
til lifsbjargar. Aldrei hefur mér hiótnazt nein
virðingarstaða heima i héraði, ekki svo mikið
sem hundahreinsun eða hreppsnefndarseta."
Skúli hefur skrifað mikinn fjölda greina í blöð
og tímarit. Missti sjónina að miklu leyti fyrir
þrcm árum, en heldur eigi að síður áfram að
skrifa — á ritvél.
Sveinbjörn Jónsson frá Hvilft i Onundarfirði,
f. 30. apríl 1931. í Gagnfræðaskóla ísafjarðar
1935—37. í Samvinnuskólantim (e. d.) 1938—39.
Nám í leiklistarsögu og dramatiskum bókmennt-
um við Stockholms högskola 1945—47 hjá próf.
Agne Beijer, sem er fyrsti prófessor í leiklistar-
sögu á Norðurlöndum. Var veturinn 1947—48
við University College í Dyflinni; las þar enskar
og anglo-írskar dramatiskar bókmenntir. Kynnti
sér jafnframt leiklistarstarfsemi sænska, irska og
brezka útvarpsins.
Vilhjálmur S. Vilhjdlmsson, f. 4. okt. 1903 á
Eyrarbakka. Var í Samvinnuskólanum 1923—25.
Gerðist þá starfsmaður við Alþýðublaðið. Rit-
stjóri Eyjablaðsins í Vestm.eyjum 1926. Blaða-
maður við Alþýðublaðið 1926—46. Síðan ritstjóri
Útvarpstíðinda til ársloka 1948. Hefur yerið rit-
stjóri Blaðamannabókarinnar, skrifað greinar i
ýmis blöð og tímrit og flutt mörg erindi í út-
varpið. Hefur skrifað pistla „Hannesar á horn-
inu“ í Alþbl. frá upphafi og gerir enn. Þrjár
53