Samvinnan - 01.08.1967, Blaðsíða 31
Ein helzta leiðin til að móta
skapgerð nemenda er iðkun
íþrótta. Mörg vandamál, sem
ógna framtíð ungs fólks, ekki
sízt í iðnaðarþjóðfélögum, eru
óþekkt í Salem. Hreyfingar-
leysi, sem veldur hjartatrufl-
unum, vöðvarýrnun, sleni og
sálflækjum, er nemendum
framandi. Hver dagur hefst
með hlaupum, og á hverjum
morgni er klukkustund varið
til líkamsæfinga, en annan
hvern eftirmiddag eru útileikir.
Hópleikir eru í hávegum hafð-
ir, ekki bara vegna þess að þeir
efli líkamsþrek, hörku, þol, við-
bragðsflýti og athyglisgáfu,
heldur og vegna þess að þeir
þroska drengskap og tillitssemi.
Velheppnuð brögð í leik eru
ekki talin mönnum til ágætis
fremur en óheiðarleiki í próf-
um eða námi.
í Gordonstoun, fyrsta skóla
Hahns í Bretlandi, voru mörg
vandamál auðveldari viðfangs
en í Þýzkalandi vegna hinnar
rótgrónu brezku skólahefðar.
Þar voru stúlkur og piltar ekki
höfð í sama skóla eins og í
Salem. Brezkt námsefni, skóla-
bragur og leikir voru sam-
ræmdir þýzku fyrirmyndinni.
Vinfengi Hahns við Sir
Lawrence Darvall flugmarskálk
leiddi til þess að þeir gerðu
áætlanir um nokkra alþjóðlega
skóla. Koma skyldi slíkum skól-
um á fót í allmörgum löndum
og síðan velja til þeirra nem-
endur af ýmsu þjóðerni, án til-
lits til uppruna eða efnahags
foreldra. Síðan skyldu þeir
hljóta æðri menntun sem við-
urkennd væri í öllum hlutað-
eigandi löndum. Samlíf þessara
nemenda eftir Salem-fyrir-
myndinni mundi gera þeim
fært að vaxa til þroska án
þeirra þjóðernislegu, trúarlegu
og menningarlegu fordóma
sem enn eitra andrúmsloft
mannkynsins.
Fyrsti skóli þessarar tegund-
ar, „Atlantic College", var
stofnaður árið 1960 á strönd
Suður-Wales. Nemendur voru
í fyrstunni 55 frá 12 þjóðlönd-
um og flestir á opinberum
styrkjum. Skólinn hefur rúm
fyrir 450 nemendur.
Kurt Hahn hefur alla tíð
verið þess fullviss að hægt væri
að lækna menningarsjúkdóma
okkar, hnignun frumkvæðis,
gætni og mennskrar samúðar.
Ungt fólk um heim allan finn-
ur enn hjá sér hvöt til áhættu,
ævintýra og allskyns nýrrar
reynslu og vill fá tækifæri til
að sanna hugdirfð sína. Mest
veltur á því að þessari hvöt sé
beint í rétta farvegi. Löngunin
til að hjálpa og bjarga leysir úr
læðingi ótrúleg öfl. Af þeim
sökum var strandgæzlu nem-
enda komið á fót í Gordons-
toun þegar árið 1935. Síðar
voru myndaðar björgunar-
sveitir í fjöllum og á sjó,
slökkviliðssveit og Rauða-
kross-sveit. Þetta hefur einnig
verið gert í Salem. Þessar sveit-
ir eru ekki einungis til þess
ætlaðar að mennta og þjálfa
nemendur, heldur eru þær
einnig lífrænir þættir í störfum
samfélagsins, ríkis og sveitar-
félaga. Þetta felur í sér að
þegar hættu ber að höndum, er
framlag nemenda í Salem eða
Gordonstoun sízt lítilvægara en
fullorðinna þegna þjóðfélags-
ins.
Til að gefa fleiri ungmennum
kost á að njóta þessarar al-
hliða, mannbætandi menntun-
ar heldur en þeim sem rúmast
í heimavistarskólunum hefur
verið stigið annað skref. Stofn-
aðir hafa verið svonefndir
„skyndiskólar“ sem einbeita
sér að ofangreindum viðfangs-
efnum á fjögurra vikna nám-
skeiðum. Slíkir skólar eru
þegar starfandi í Bretlandi,
Afríku og Ástralíu. Tveir
„skyndiskólar" í Austurríki og
Vestur-Þýzkalandi hafa þegar
verið sóttir af yfir 20.000 ung-
mennum.
Hugmyndir Hahns um al-
hliða menntun og mótun nem-
enda hafa ekki fest rætur á ís-
landi, en þeirra er ekki sízt
þörf í landi þar sem agi, ein-
beitni og verklund gerast fá-
gætari með hverju ári.
s-a-m.
31