Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 42

Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 42
innar í Nicaragua og stjórn Papa Docs á Haiti). Á einu augna- bliki hvarf smjaðrið, hinir fullkomnu gullhamrar, „Vinsældir og áhrif“, og allt þetta andstyggilega sjónarspil. Meira en það. Ljóti Ameríkumaðurinn var orðinn reiður Amerikumaður. Gestgjafinn var ekki lengur „vor ágæti gest- gjafi, hinn gáfaði Colonel“, heldur maður sem tók við skipunum frá Mr. Harrington. „Þessi maður,“ sagði Bandaríkjamaðurinn kuldalega og benti á mig teinréttum vísifingri, „er njósnari!“ Mér duldist ekki, að þetta var alvara — alvara mitt í þessu ótrúlega sjónarspili. Ég dró upp pappíra mína frá utanríkis- ráðuneytinu og rétti Bandaríkjamanninum. Hann leit fljótlega í gegnum þá. „Þessi maður er njósnari," endurtók hann við ofurstann. „Viljið þér kalla á verði yðar!“ Ofurstinn bað ekki um að fá að sjá skjölin, kallaði aðeins á verðina. Forviða virti ég fyrir mér þennan Bandaríkjamann, forstjóra einhvers fyrirtækis í Gary í Indiana, sem sat hér í Ciudad Guatemala, höfuðborg ríkis sem fékk sjálfstæði 15. september 1821, og gaf fyrirskipanir ráðherra, ofursta í her Guatemala og bróður stjórnmálaleiðtoga íhaldsmanna í landinu. Nú voru tveir lífverðir ofurstans komnir inní stofuna. Þeir voru vopnaðir vélbyssum. Bandaríkjamaðurinn og ofurstinn áttu hljóðskraf saman, ofurstinn gaf vörðunum fyrirskipun, kom síðan til mín og skipaði mér að fylgja þeim. Útifyrir stóð jeppi, sem ég hafði ekki tekið eftir, þegar ég kom. Mér var sagt að setjast afturí, annar vörðurinn settist við hlið mér og við héldum á braut. Við ókum á að gizka hálfa klukkustund um götur höfuðborgarinnar, unz við komum útúi borginni. Á myrkum stað, umgirtum eukalyptustrjám, var num- ið st.aðar. Mér var skipað að koma útúr bílnum og síðan sagt að ganga áfram í stefnu á trjáhvirfingu eina. Allt reyndist þetta vera tómt gabb. I stað skothríðarinnar, sem ég vænt.i, var mér sagt að snúa við, skipað inní jeppann á ný, og nú lá leiðin t.il baka inní borgina. Framanvið alræmdar höfuðstöðvar lögreglunnar í miðborginni, byggingu í nýlendu- spænskum barokstíl, stöðvaðist bifreiðin, og þegar lífverðirnir höfðu gert dyraverðinum grein fyrir máli mínu, var ég fluttur í klefa í miðri byggingunni. Morguninn eftir vakti mig kurteislegur maður á klæðskera- saumuðum fötum: „Senor, þér getið farið núna.“ Ég neitaði að yfirgefa staðinn fyrr en ég fengi að vita ástæðuna fyrir fang- elsun minni. „Augnablik.“ Litlu síðar kom hann aftur: „Þér hafið móðgað el coronel Aguilar. Þér verðið að fara strax,“ bætti hann við, „annars verðið þér fangelsaður aftur.“ Ég fór. Þegar ég hafði skotizt heim á hótel mitt, fór ég strax til aðal- ræðismanns Dana í Guatemala, gamals aristókratísks Guate- malabúa, sem ég hafði áður kynnzt ofurlítið. Hann hafði sam- bönd á hæstu stöðum, og þar að auki var kona hans félagsmála- ráðherra, og e. t. v. gæti hann eitthvað sagt mér. Ilann hlustaði þolinmóður á útskýringar mínar, en hafði engan áhuga á mál- inu. Ég varð að gera mér grein fyrir, að þetta var Guatemala, og ég hlaut að skilja, að þetta var allt mín sök. Síðan Iiringdi ég til danska yfirmannsins í sendiráði Dana. Sami maður og hafði sagt mér, að Guatemala væri „rólegt land“, virtist ekki vitundar ögn hissa, og fann ekki ástæðu til að gera neitt í málinu. Ilann hafði öðrum hnöppum að hneppa, en ég gæti að sjálfsögðu lagt inn skriflega skýrslu, sem síðan yrði „komið áleiðis til sendiherrans í Mexíkó." Loks skýrði ég bandaríska blaðafulltrúanum, sem hafði gefið mér skakka heimilisfangið og símanúmerið, frá afleiðingunum af mistökum hans. Því tvímælalaust voru þetta mistök — þrátt fyrir liinar merkilegu kringumstæður. Þessi sendiráðsstarfsmaður hafði að vísu engu við að bæta, en bandarískur fréttaritari gat gefið mér athyglisverðar upplýsingar: Eineygði Bandaríkjamaðurinn, Kenneth P. Harrington, var í rauninni sami maður og staðið hafði fyrir heimsókn Juans de Dios Aguilars ofursta til Banda- ríkjanna í janúar í fyrra. Þá var Juan ofursti frambjóðandi til forsetakosninganna, sem fram fóru einum tveim mánuðum síð- ar, og þar sem hann var frambjóðandi herforingjastjómarinnar, var hann talinn öruggur „sigurvegari" í kosningunum. Þess vegna var hann sendur til Bandaríkjanna. Það átti rétt að kynna Washington og stjórnarherrana í Bandaríkjunum fyrir tilvonandi stjórnanda Guatemala. Samkvæmt frásögn þessa bandaríska blaðamanns var Mr. Harrington Iciðsögumaður of- urstans alla leiðina. Juan ofursti vann nú samt ekki kosningarnar, og öllum til undrunar leyfði einræðisstjórnin í fyrrasumar sigurvegaranum, liinum frjálslynda Julio César Méndez Montenegro, að taka við forsetatign. Það var í fyrsta skipti sem stjórnmálamaður úr stjórnarandstöðunni vann forsetakosningar í allri sögu Guate- mala. (Herinn setti liann af síðar). Það var raunverulega hinn fallni forsetaframbjóðandi, Juan ofursti, sem ég hafði ætlað mér að eiga viðtal við í Ciudad Guatemala. En hver var þá þessi Mr. Ilarrington? Væri það að láta ímyndunaraflið hlaupa með sig í gönur að gizka á, að hann hafi verið starfsmaður leyniþjónustunnar CIA? Þýð. HP. Skæruliðar (Castro-sinnar) í Guatemala. 42
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.