Samvinnan - 01.08.1967, Page 59
1. Þessi kirkja í Hartford í Connecticut, teiknuð af
Victor Lundy, reist af únítarasöfnuði, fær hlýlegt
yfirbragð vegna þess að hið lága loft er gert af
þungum trjábútum sem reistir eru á rönd og festir
neðan á stálgrind.
2. Kapella í Creve Coeur í Missouri, teiknuð af Hell-
muth, Obata og Kassabaum, er gerð af þremur röð-
um steinsteyptra boga sem haldið er saman með
jarðfestum innviðum.
3. í þessari kirkju í Stamford í Connecticut fylgdi
Wallace Harrison þeirri gömlu hefð að setja altarið
fyrir enda kirkjuskipsins. En í sjálfri byggingunni
notaði hann litaða glugga, sem náðu til lofts og
festir voru í steinsteypta ramma, í staðinn fyrir
venjulega veggi.
4. Þessi rómversk-kaþólska klausturkirkja er í Colle-
geville í Minnesota og gerð af Marcel Breuer. Stór-
brotinn klukkuturninn gnæfir yfir holótta framhlið-
ina sem er alsett glerrúðum, Steinsteyptir veggirnir
eru naktir innan húss sem utan.
59