Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 63

Samvinnan - 01.08.1967, Qupperneq 63
voru yfirleitt verr farnar en græðisléttur og gömul tún. Vorið 1962 gætti mikils kals í Þingeyjar- sýslum, og flestum er minnisstætt kalið á Austurlandi 1965. í greinargerð um rannsóknir mínar á kalinu í Þingeyjar- sýslu 1962 skýrði ég frá orsökum kalsins þar og er sennilegt að einmitt svipaðar aðstæður valdi kali í öðrum árum. Um haustið féll mikill snjór á þíða jörð. í febrúar gerði rigningar og hlánaði víða allmikið. Tók þá snjó af hávöðum og efst í hlíðum. Þar sem þannig var háttað, varð ekki vart kals. í hlíðardrögum, eink- um sunnanverðum, og í dældum, þar sem skaflar voru þykkastir, mun snjór ekki hafa náð að gegnblotna. Á þessum svæð- um, þar sem þurr snjór huldi svörðinn, kom jörðin einnig óskemmd undan vetr- inum. Þar sem snjóalagið var hins vegar grynnra, t. d. í jöðrum skaflanna og á flatlendi, myndaðist krapaelgur í hlák- unni. Þessi elgur fraus síðan og varð að svelli, en svellgljáin lá langt fram á vor. Vegna þess að jörð fór þíð undir snjó hafa grös ekki verið fullhörðnuð. Öndun hefur ítt sér stað þar til loftleysi hefur orðið undir klakanum, einkum í þéttum mýra- og leirjarðvegi. Við þessi skilyrði hafa venjuleg túngrös ekki getað lifað og beinlínis kafnað vegna súrefnisskorts. Þegar svellin tók loks að leysa kom gróð- urinn dauðkalinn undan þeim. Oft er það látið í veðri vaka að lingerðum gras- tegundum sé einkum að kenna hve ný- ræktir kelur. Að nokkru leyti er þetta rétt en þó er tjónið ekki allt af þessum völd- um. Allan gróður getur kalið ef þannig viðrar, en gróðurinn er misnæmur fyrir hinum ýmsu tegundum kals. Endaþótt mýrarflákar svellfrjósi, sakar hálfgrösin, sem þar vaxa, yfirleitt ekki. Flest grös eru viðkvæm fyrir rót- og svellkali, en þau verjast bezt, sem hafa sterkan rótarháls eða mynda þéttar hvirfingar, svo sem snarrótin. í mýrlendi munu snarrót og hálmgresi vera þolnust heilgrasa. í þurr- lendi lifa túnvingull og skriðlíngresi helzt innlendra grasa. Endaþótt innlendar grastegundir þoli misvel frosthörkur og svellalög eru þær að öllu jöfnu þolnari aðfluttum jurtum frá suðlægari svæðum. Er því ekki annars að vænta, en að grastegundir af aðfluttu fræi geti orðið fyrir áföllum ef illa árar. Af hinu erlenda sáðgresi er háliðagrasið iangþolnast. Er það auk þess skriðult og getur á fáum árum þakið kalblettina að nýju. Er því nauðsynlegt að nota einkum þessa tegund í þeim landshlutum, sem hættast er við kali. í tilraunaskýrslum hefur verið bent á ýmsar úrbætur og varnir gegn kali. Eitt er það að nota frostþolnari grastegundir. Innlendar grastegundir eru að öllu jöfnu þolnari en erlendar og hefur því verið höfuðverkefni jurtakynbótadeildar Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins að leita að harðgerðum stofnum innlendra grastegunda, sem hægt væri að nota til undaneldis og fræræktunar fyrir íslenzk- ar aðstæður. Ýmsir erfiðleikar hafa þó orðið á þeirri framkvæmd, einkum vegna þess að erfitt reynist að rækta fræ af ís- lenzku stofnunum erlendis. Standa þó vonir til þess að slík fræræktun takist, en með því mundi mikið hafa áunnizt í baráttunni gegn kali. Tjón af völdum kals skiptir tugum milljóna, og það er þess virði fyrir þjóðina að leggja nokkuð af mörkum til þess að reyna að leita úr- lausna á þessu mikla vandamáli gras- ræktarinnar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Samvinnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.