Samvinnan - 01.12.1967, Síða 12

Samvinnan - 01.12.1967, Síða 12
En byltingin heppnaðist glæsilega, að minnstakosti í byrjun. Lenín gat tekið af sér andlitsgrímuna og hárkolluna, efa- semdamaðurinn Kamenév sat í forsæti á þingi sovétanna sem samþykkti fyrsta ráð alþýðukommissara (ríkisstjórn) þar sem Stalín var útnefndur kommissar þjóðernisminnihluta. Byltingin var „létt- ari en að lyfta fjöður“, sagði Lenín. í ráðum Flokksins var Stalín nú valda- meiri en Kamenév og Zínovév; einung- is Lenín, Trotskí og Sverdlov voru hon- um æðri. Á hinu stutta skeiði framað Brest- Litovsk-sáttmálanum (marz 1918) gegndi Stalín mikilvægu hlutverki í embætti kommissars þjóðernisminnihlutanna, því hann bar ábyrgð á framtíð 180 ,,þjóða“, sem ekki voru af rússneskum stofni en námu um helmingi allra íbúa hins gamla rússneska keisaradæmis. En þegar bolsé- víkar urðu að kaupa friðinn við Þýzka- land með því að afhenda landamærahér- uðin í vestri sem ekki voru byggð Rúss- um, voru starfi hans reistar óvæntar skorður. Hann var á þessu skeiði furðu- lega frjálslyndur. Maðurinn, sem var harðstjóri allra þjóða Austur-Evrópu við ævilokin, hóf feril sinn sem talsmaður sjálfsákvörðunarréttar þjóðanna. Hann veitti Finnum sjálfstæði og gaf Úkraínu- mönnum og Georgíumönnum heimild til að segja sig úr lögum við Sovét-Rússland ef þeir kærðu sig um — og í þessum efn- um studdi Lenín hann og varði fyrir gagnrýni annarra kommúnista. „Það er óhugsandi," sagði Stalín, „að við látum það viðgangast að nokkurri Iþjóð sé haldið með valdi innan ramma nokkurs ríkis.“ Ef þeir gerðu það, væru þeir sjálfir „erindrekar stefnu keisarastjórn- arinnar". Sá tími var ekki enn runn- inn upp, þegar tilraunir íra og Indverja til að losna undan Bretum yrðu taldar „byltingarkenndar", en tilraunir Júgó- slava, Úkraínumanna og Pólverja til að losna undan Rússum „afturhaldssam- ar“. Þegar á árunum 1921—22 var Stalín farinn að taka harkalega á þeim Georgíu- mönnum sem vildu aðskilnað frá Rúss- landi. Hann fór til Tíflis 1921 og bakaði sér óvild samlanda sinna með því að skamma þá fyrir heimskulega þjóðernis- stefnu. Hann „hreinsaði" forustulið kommúnista í Georgíu án blóðsúthell- inga, og Kákasus var sameinað Sovét- ríkjunum. Sama máli gegndi um fjöld- ann allan af frumstæðum þjóðlöndum í Asíu sem komust nú í fyrsta sinn í kynni við skóla, áveitur og vestrænar hugmyndir um jafnrétti og framfarir. Þó „Asíumaðurinn" Stalín hafi mjög skert frelsi Evrópumanna í Sovétríkjunum og Austur-Evrópu, átti enginn einstakling- ur ríkari þátt í því en hann að gróður- setja evrópskar hugmyndir í víðáttum Asíu. Byltingin var „léttari en að lyfta fjöð- ur“, en borgarastyrjöldin og íhlutun er- lendra ríkja reyndust svo þungar byrð- ar að nærri lá að byltingin kiknaði und- an þeim. í vissum skilningi kiknaði hún: aldrei eftir 1921 — örugglega aldrei eftir dauða Leníns 1924 — endurvaknaði sú hugsjónaglóð sem einkenndi fyrstu ár- in eftir byltinguna. í borgarastyrjöldinni fór Stalín sem pólitískur kommissar til Tsaritsýn á Volgubökkum — borgarinnar sem brátt hlaut nafnið Stalíngrad — þar sem hann hóf, að því er hann sjálfur sagði, „skipulagðar múgógnir gegn borg- arastéttinni og erindrekum hennar“. Hann hafði upphaflega verið sendur þangað til að sjá um sendingu kornbirgða til Moskvu og Petrógrad, sem bjuggu við sult (brauðskammturinn var hálft pund á viku), en hann flækti sig óðara í stjórn stríðsrekstursins þar syðra og lenti óbeint í fyrstu alvarlegu deilunni við Trotskí. Trotskí hafði sannfært Len- ín um að Rauði herinn yrði að halda áfram að nota liðsforingja úr keisara- hernum (þráttfyrir hættuna á liðhlaupi) tii að tryggja hæfni hans til bardaga. Öreigasonurinn Stalín og fyrrverandi undirforingjar af lágum stigum einsog Búdjonní og Vorosjílov voru mjög and- vígir þessari stefnu og mótmæltu eða jafnvel virtu að vettugi skipanir her- málaráðherrans, Trotskís. Ástandið í Tsaritsýn var tvísýnt; borgin var um- kringd andbyltingarsinnuðum kósökk- um. Trotskí sakaði Vorosjílov um óhæfni og Stalín um fara útfyrir valdsvið sitt. Þegar loks tókst að frelsa borgina, þakk- aði Trotskí það stjórn Rauða hersins, þráttfyrir frammistöðu yfirmannanna á staðnum, en Stalín og allir rithöfundar Stalín-skeiðsins þökkuðu það Vorosjílov og Búdjonní — og vitaskuld Stalín ■— sem hefðu haft betur í átökunum við „fínu herrana í hernum“. Sama fyrirlitn- ingin gagnvart „fínum, menntuðum og sérhæfðum mönnum" kemur fram hjá skósmiðssyninum Stalín einsog hjá Hitl- er, misheppnuðum syni minniháttar emb- ættismanns. Tsaritsýn-þjóðsagan óx og óx unz Tsaritsýn varð Stalíngrad, og orustan mikla 1942, þegar borgin varð vettvangur einhverra mestu hernaðar- átaka heimssögunnar, staðfesti gömlu þjóðsöguna jafnframt því sem hún skap- aði aðra nýja. Borgarastyrjöldin var háð allt árið 1919 og framá árið 1920; hún skóp alls- herjar ringulreið, þar sem hungur, grimmd, eyðilegging og upplausn héldust í hendur. Eftir atburðina við Tsaritsýn hélt Stalín til Petrógrad, Kákasus og ýmissa staða annarra sem ógnað var af Hvítliðum. Þó Stalín væri síðri leiðtogi en Trotskí — sem var ekkert nema eldur og stál — átti hann mikilvægan þátt í ýmsum ákvörðunum, og Lenín fékk æ meira álit á glöggskyggni hans og hæfi- leika til að gera sér grein fyrir erfiðum aðstæðum og bregðast skjótt við. Fyrir þátt sinn í vörn Petrógrad var hann ásamt Trotskí sæmdur orðu Rauða fán- ans. í rússnesk-pólska stríðinu 1919 átti hann að minnstakosti nokkra sök á herfilegum óförum Rússa; Trotskí sak- aði hann um að hafa háð „sitt eigið stríð“ og sótzt eftir eigin vegsemd með því að taka Lvov í stað þess að hjálpa hinum til að taka Varsjá. í lokaátökun- um við Wrangel hershöfðingja, þegar Krímskaginn var unninn úr höndum óvinarins og endi bundinn á borgara- styrjöldina 1920, átti Stalín vissulega sinn þátt í yfirstjórn hernaðarins, þó Trotskí fullyrði að jafnvel í því efni hafi hann verið „þriðja flokks maður." Hvað sem segja má um afrek Stalíns í borgarastyrjöldinni, var hann þegar farinn að draga til sín þau margvíslegu borgaralegu völd, sem áttu eftir að gera hann að einræðisherra Sovétríkjanna Lenín og Stalín hittast jyrir utan Moskvu árið 1922. 12

x

Samvinnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.