Samvinnan - 01.12.1967, Síða 28
Togarinn Nar/i áður en hraðfrystitœkin voru sett í hann.
hér á landi hafa menn verið
furðu hægfara við að fylgjast
með þeirri þróun, sem átt hef-
ir sér stað víða um heim með
heilfrystan fisk, uppþíðingu
hans og endurfrystingu. Hvað
aðrar þjóðir hafa aðhafzt i
þeim efnum, vil ég drepa á hér
í örstuttu máli.
Á árunum eftir 1960 gerðu
Bretar margvíslegar tilraun-
ir í rannsóknarstofnun sinni í
Aberdeen, sem Torry Research
Station nefnist, með uppþíð-
ingu og endurfrystingu á heil-
frystum fiski. Báru þær til-
raunir svo góðan árangur, að
brezkir útgerðarmenn létu
breyta gömlum ísfisktogara í
heilfrystiskip. V|ar það skip
rekið nokkurn tíma við þær til-
raunir og varð upphaf á smíði
nýs skuttogara, sem sömu eig-
endur létu byggja með full-
komnum hraðfrystitækjum fyr-
ir heilfrystingu. Hét skip þetta
„Lord Nelson“.
Vestur-Þjóðverjar gerðu
einnig tilraunir í sömu átt á
nokkrum skuttogurum, en höll-
uðu sér meira að fullkomnari
vinnslu á fiskinum, létu flaka
hann og frysta í blokkir að
mestu fyrir heimamarkað.
Grískir útgerðarmenn hafa
nú talsvert stóran togaraflota,
sem búinn er frystitækjum.
Sérstaklega er það svokölluð
kanalfrysting með loftblæstri,
sem þar er notuð.
Þá hafa Hollendingar, Norð-
menn og fleiri þjóðir aukið
verulega framleiðslu sína á
heilfrystum fiski. Þróun í þessa
átt hjá okkur fslendingum hef-
ir fram til þessa aðeins verið
sú, að eitt skip, togarinn Narfi,
hefir verið búið hraðfrysti-
tækjum til heilfrystingar á
hverskonar fisktegundum. Hef-
ir sú hlið, er snýr að tæknibún-
aði, komið vel út, en allmiklir
erfiðleikar orðið annað slagið
við afsetningu aflans á er-
lendan markað, en þó hefir
tekizt vel með sölu á 3.500 tonn-
um á Rússlandsmarkað tvö s.l.
ár.
Tilgangur Breta með hinum
heilfrysta fiski var sá að hafa
að jafnaði nokkurt magn af
þeim fiski á lager, til þess að
geta tekið hann til sölu á fersk-
fiskmarkaðinum eða fylla upp
í eyður hjá hraðfrystihúsum
sínum, þegar fiskþurrð væri.
Allmikið af þeim fiski hefir
verið unnið í svokallað „fish-
sticks“ með mjög góðum ár-
angri.
Nú er svo komið að allir hin-
ir stærri togarar Breta, sem
nú eru í smíðum, eru skut-
skip búin frystitækjum fyrir
heilfrystan fisk.
Því miður er ekki hægt að
segja, að slíkur áhugi hafi
ríkt hér á landi fyrir þessum
nýjungum, því erfiðlega hefir
reynzt að fá nokkra fyrir-
greiðslu varðandi kaup á nauð-
synlegum uppþíðingartækjum,
sem nota þarf við fullkomna
vinnslu á hinum heilfrysta
fiski og endurfrystingu til út-
flutnings.
Öll meðhöndlun á heilfryst-
um fiski er mjög einföld um
borð í frystiskipunum. Þar er
fiskurinn fyrst blóðgaður, síð-
an afhausaður, þveginn og þar
á eftir raðað í frystitæki, sem
hafa lóðréttar frystiplötur, er
skila honum í ýmist 25 eða 50
kílóa blokkum. Þegar fryst-
ingu er lokið, flytur botn tæk-
isins blokkirnar niður í
geymslulest, þar sem þeim er
raðað til geymslu.
Hagkvæmt þykir að nota þar
til gerða palla og lyftara við
flutning og geymslu á fiskin-
um. Sparar það verulega vinnu-
afl og eykur vinnuafköst.
Tilraunir, sem gerðar hafa
verið í ýmsum löndum, sýna að
uppþíðing og endurfrysting á
heilfrystum fiski hefir borið
mjög jákvæðan árangur i
flestum tilfellum.
Nýverið var hér á ferðinni
Kanadamaður, að nafni hr.
Mac Callum, sem veitir for-
stöðu fiskiðnaðarrannsókna-
stofnun Kanada á Nýfundna-
landi; flutti hann erindi á veg-
um Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaðarins fyrir ýmsa aðila úr
fiskiðnaðinum hér á landi.
Skýrði hann svo frá að rann-
sóknir, sem hann hefir annazt
í frystihúsi einu á Nýfundna-
landi á síðustu árum, sýndu
óumdeilanlega þær niðurstöð-
ur, að frysta og þíða mætti
heilfrystan fisk allt að sex
sinnum án þess að um gæða-
rýrnun væri að ræða. Ennfrem-
ur taldi hann þungatap svo
lítið við uppþíðingu, að það
skipti engu máli í rekstri.
Þá gat hr. Mac Callum þess,
að umgetið hraðfrystihús hefði
flutt allan sinn endurfrysta
fisk á Ameríkumarkað undir
sama vörumerki og einfrystan
fisk.
Árangur þeirra tilrauna, sem
fram til þessa hafa verið gerð-
ar víða um heim, gefur ótví-
rætt ástæðu til að álíta, að
endurfrysting á heilfrystum
fiski muni fara ört vaxandi í
heiminum og æ fleiri hrað-
28