Samvinnan - 01.12.1967, Page 59
Efsta mynd: Kolblásin örœfi i Kerlingafjöllum.
Miðmynd: Á Kili.
Neðsta mynd: Fjallabaksleið.
nefna hverasvæði á hálendinu,
þar sem hestar og sauðfé hafa
ótakmarkaðan aðgang, með
þeim afleiðingum að mjög sér-
kennilegar kísilmyndanir sem
þar eru liggja undir skemmd-
um vegna átroðnings. Með til-
tölulega litlum tilkostnaði
mætti varðveita flesta fegurstu
staði landsins til yndis og
ánægju fyrir komandi kynslóð-
ir. Víða þyrfti að afgirða slík
svæði, koma fyrir gangstígum
og skipuleggja tjaldstæði til
þess að koma í veg fyrir sóða-
skap og illa umhirðu.
Mér finnst dugnaður ein-
kenna íslendinga, og miðað við,
hve fáir vísindamenn eru að
störfum í landinu, er rann-
sóknastarfsemin vel á veg kom-
in. Hins vegar varð ég var við
alvarlegt vandamál, sem ég tel
að standi rannsóknastarfsem-
inni fyrir þrifum, en það eru
launakjör margra islenzkra
vísindamanna. Það virðist ekki
óalgengt, að þeir hafi mun
lægri laun en iðnaðarmenn og
ist augljóst, að það væri góð
fjárfesting að launa vísinda-
menn betur en nú er gert.
Mér virtust vera mjög fáir
menn með háskólamenntun í
landbúnaði og náttúruvísind-
um á íslandi. Þeir eru senni-
lega ekki fleiri en 40—50 í
landinu öllu, og aðeins um 5
með doktorspróf. Þar sem
framtíð íslands byggist á nátt-
úruauðæfum landsins, ætti að
leggja meiri áherzlu en nú er
gert á að laða áhugasama og
hæfa unga menn til þessara
starfa. Það er í samræmi við
mannlegt eðli, að ef ekki eru
greidd sæmileg laun fyrir eitt-
hvert starf, fást hæfir menn
ekki til að vinna þau. Það er
álit mitt, að vísindamaður sé
ekki fær um að nýta til fulln-
ustu menntun sína og hæfi-
leika, ef hann þarf samtímis
að sinna öðrum störfum til
þess að geta fjárhagslega séð
fyrir sér og sínum.
Væri vísindamönnum á ís-
landi greitt í samræmi við þá
aðrir, sem ekki hafa háskóla-
próf eða þjálfun í vísindastörf-
um. Það virðist t. d. ekki óal-
gengt, að trésmiðir hafi meiri
tekjur en vísindamenn við eina
helztu rannsóknastofnun
landsins. Margir vísindamenn
virðast því þurfa að stunda
ýmiss konar aukastörf til þess
að geta komizt sæmilega af.
Það er álit mitt, að við þessi
skilyrði geti enginn rækt störf
sín með fullkomnum árangri.
Ég hef vissulega enga lausn á
þessu vandamáli, en mér virð-
menntun, sem krafizt er af
þeim, og í samræmi við laun,
sem greidd eru fyrir hliðstæða
menntun í öðrum löndum, er
ég í engum vafa um, að það
yrði fljótlega endurgoldið með
enn betri árangri af rannsókn-
arstarfinu.
Ég hafði mjög mikla ánægju
af hinni stuttu heimsókn minní
á íslandi og vonast til að geta
heimsótt landið fljótlega aftur.
Þinn einlægur
George M. Van Dyne.
59