Samvinnan - 01.12.1967, Blaðsíða 61
lagahljómsveit getur komizt,
er bara að líkja eftir þeim,“
segir eitt úr þeirra flokki.
Einn gagnrýnandi segir til
dæmis í öðru blaði: „Einu sinni
var það talið merkja list, ef
maður kom fram á sjónarsvið-
ið með eitthvað nýtt og frum-
legt, sem kom róti á hugi fólks-
ins, fékk það til að hugsa um
þetta, sem maðurinn hafði
skaþað, og reyna að skilja
hvað hann væri að fara. Ef
Bítlarnir hafa ekki gert þetta
allt saman með þessari nýju
plötu sinni, er þessi skilgrein-
ing á listinni úrelt.“
Bitlarnir hafa lýst því yfir
opinberlega að þeir hafi neytt
LSD, og þegar það gerðist
fengu þeir andúðaröldu al-
mennings á móti sér, því að
óttazt var að stór hluti óþrosk-
aðra unglinga, sem jafnan
hefur apað upp tiltektir Bítl-
anna, myndi snúa sér að þessu
deyfilyfi. En Bítlarnir stóðu af
sér andúðarölduna, eins og
allt annað, enda voru þeir svo
skynsamir að snúa stefni sínu
að indverskri heimspeki litlu
síðar. „Við fundum ekki lífs-
hamingjuna við notkun á LSD,
og því höfum við snúið okkur
að indversku heimspekinni."
Lærifaðir þeirra er indversk-
ur jógi að nafni Maharishi
Mahesh, sem eignazt hefur
stóran hóp áhangenda fyrir til-
stilli þeirra Pauls, Johns,
Georgs og Ringos. Hvað boðar
hann þeim? Greiða og einfalda
leið til að ná ÞESSU. Og hvað
er þetta ÞETTA? „Ég er
ÞETTA, þú ert ÞETTA, allt er
ÞETTA“, er jafnan svar
Mahesh. Og hversu miklu nær,
sem þú kannt að verða við
þetta svar, nægir það þeim
félögum.
Somerset Maugham lætur
eina sögupersónu sína finna
lífshamingjuna í indverskri
heimspeki í bók sinni „f leit
að lífshamingju.“ Kannski ger-
ist þetta líka í raunveruleik-
anum, og hver veit þá nema
að á næstu plötu Bítlanna
verði eingöngu sálmalög?
Hvert stefnir æskan í dag?
hefur jafnan verið áleitin
spurning meðal hinna lífs-
reyndu og veraldarvönu, þeg-
ar unga fólkið hefur gengið
fram af þeim með furðulegum
og nýstárlegum tiltækjum.
Þannig var það, þegar Bítlarn-
ir gjörbyltu dægurlögunum og
síða hárið ásamt drabbaraleg-
um klæðaburði hélt innreið
sína inn í hversdagslífið fyrir
tæpum fimm árum. Og þróun-
in hefur haldið áfram, tiltæk-
in verða æ furðulegri, og
sennilega hefur fyrrgreind
spurning aldrei verið áleitnari
en einmitt á þessari stundu.
Nú er svo komið, að meira að
segja þeim, sem brostu góðlát-
lega í kampinn hér áður fyrr
yfir tiltækjunum og voru ávallt
reiðubúnir að leggja eitthvað
gott til málanna, er ekki farið
að verða um sel. Hvers vegna?
Jú, vegna þess að stór hópur
æskufólks erlendis hefur nú
loksins gengið of langt, að
flestra dómi.
Þetta eru hinir svokölluðu
„hippies", sem eru orðnir al-
þekkt fyrirbæri í flestum stór-
borgum erlendis, og hafa þar
meira að segja lagt undir sig
heilu borgarhverfin. Þeir eru
auðþekkjanlegir frá almúgan-
um — karlmennirnir eru síð-
hærðir og skeggjaðir, kven-
fólkið með hárið niður yfir axl-
ir og í afar stuttum pilsum, og
klæðnaðurinn frábærlega lit-
skrúðugur og frumlegur. Þeir
hafa sínar eigin þjóðfélagslegu
skoðanir, stéttaskipting fyrir-
finnst ekki, og allt er sameign,
ef svo má segja. Og um allt
þetta er ekki nema gott eitt
að segja. En svo kemur að
trúarbrögðunum . . . við skul-
um að minnsta kosti kalla það
trúarbrögð, enda þótt þau séu
talsvert annars eðlis en við eig-
um að venjast.
Segja má að undirstaða þess-
ara trúarbragða sé deyfilyfið
LSD. Að sögn margreyndra eit-
urlyfjaneytenda er það allra
eiturlyfja stórkostlegast, því að
við notkun á því tekst neytand-
inn á hendur ferð inn í
draumalönd undurfagurra hill-
inga og kynlegra sýna. Leiðsla
þessi varir mismunandi lengi
— fer að sjálfsögðu talsvert
eftir magni skammtsins, er
tekinn hefur verið — en því
lengur sem hún varir, þeim
mun betur hefur ferðin tekizt.
Dugmiklum prédikurum þessa
lyfs tókst að telja fólki trú um
að hér væri um öldungis
hættulaust lyf að ræða, og því
sigldi stór hópur andvaralaus
að feigðarósi. Og það er ekki
fyrr en nú á síðustu tímum,
að læknavísindin uppgötva að
hér er ekki á ferðinni hættu-
laust lyf, heldur skaðræðis-
valdur. Eftirverkanir þess
liggja m. a. í ýmiss konar sál-
sýki og taugalosti, svo og hef-
ur notkun þess meðal þung-
aðra kvenna í för með sér van-
sköpun á fóstri, svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Við skulum aðeins líta á sögu
þessa meinvalds. Lyfið kom
fyrst fram í Sviss árið 1938,
en þar reyndu menn það gegn
ofdrykkju, hugklofningi og
kynvillu og bar þetta nokkurn
árangur. Um 20 ára skeið mátti
það þó heita algjörlega óþekkt
meðal almennings, en á þeim
tíma gekkst m. a. bandaríski
kvikmyndaleikarinn Cary
Grant í veikindum undir nokkr-
ar LSD-tilraunir. Hann skrif-
aði síðan eldheita lofgjörð um
þátt lyfsins í að auka þekk-
ingu mannsins á sjálfum sér.
Velmektarár lyfsins hefjast
svo árið 1962, þegar dr.
Timothy Leary og vinnufélagi
hans við Harvardháskólann,
Richard Alpert, byrjuðu að
framleiða það í stórum stíl.
Þegar þeim var svo vísað frá
starfi við háskólann fyrir að
hafa haldið þessu lyfi óspart
að stúdentunum lögðu þeir
land undir fót, ferðuðust um
endilangt landið og prédikuðu
ágæti þess. Þeir hafa náð ótrú-
lega miklu fylgi, en aðallega
er það þó æskufólkið, sem tek-
ið hefur lyfið og skoðanir
Learys og félaga hans upp á
arma sér. Þeir hafa nefnilega
gott tromp við höndina, því að
þeir boða LSD á trúarbragða-
legum grundvelli, en sam-
kvæmt bandarískum lögum er
óheimilt að hindra borgarana
í trúariðkunum sínum, hvernig
sem þær kunna að vera. Gott
dæmi um það er Native
American Church, þar sem
ákveðnir indíánaþjóðflokkar
tyggja eiturlyfið peyote sem
sakramenti. Eins fara Leary
og fylgismenn hans að, og eng-
inn fær hindrað þá fremur en
indíánana.
Leary er athafnasamur
prédikari og árangursríkur.
Hann boðar, að LSD hjálpi
neytandanum við að finna
sjálfan sig og þekkja, leysi
vandamál hans og auki
sköpunargáfuna. En á fyrra
ári byrjaði LSD fyrst að missa
virðinguna verulega, þegar
bandaríska læknasambandið
fullyrti að aukning á ýmsri
geðveiklun ætti rætur sínar að
rekja til notkunar á LSD. Og
þess vegna er það nú komið
í hóp með öðrum hættulegum
lyfjum, svo sem heróíni, ópíum
o. fl. Hér á Norðurlöndum er
notkun á LSD talsverð, sér-
staklega þó meðal æskufólks í
Svíþjóð og Danmörku. Hér á
íslandi munu engin dæmi um
notkun á því, og er vonandi að
svo verði áfram.
61