Samvinnan - 01.04.1970, Blaðsíða 43

Samvinnan - 01.04.1970, Blaðsíða 43
Ullarvinnslan hejur flutzt frá bœndabýlunum til samvinnufélaganna. Myndin sýnir spunavélar hjá Gefjun á Akureyri. verið hagnýtt til að byggja þau upp og efla á allan hátt. Svo má ekki gleyma þeirri af- drifaríku staðreynd, að fjármagn samvinnu- félags má undir engum kringumstæðum flytja burt úr byggðarlagi. Þar er sú trygg- ing sem kannski varðar mestu fyrir smærri byggðarlög útá landi. Segja má með nokkrum sanni, að sam- vinnufyrirkomulagið tryggi það, að einstakl- ingsframtak njóti sín, því samvinnufélög eru vitanlega eign allra félagsmanna, en á hinn bóginn reisir það skorður við ókostum einka- framtaks sem miðast einvörðungu við einka- þarfir og einkaneyzlu. Samvinnufélög eru einnig að því leyti miklu „lýðræðislegri“ en hlutafélög, að þar eru atkvæði allra félags- manna jafngild án tillits til eigna, en í hluta- félögum ræður fjármagnið eitt, að vísu stundum með ákveðnum takmörkunum. Því fer víðsfjarri að hlaðið hafi verið und- ir íslenzk samvinnufélög af opinberri hálfu. Oft og einatt hefur fremur verið unnið gegn þeim af íslenzkum stjórnvöldum, til dæmis undanfarinn áratug, og raunar frá upphafi af forráðamönnum Reykjavíkurborgar. Þau hafa eigi að síður spjarað sig og sannað yfir- burði þeirra grundvallarhugmynda sem starfsemi þeirra er reist á. Á sama tíma hafa æ fleiri einkafyrirtæki ýmist verið rekin fyrir fé almennra sparifjáreigenda eða bein- línis verið sett á framfæri ríkisins að meira eða minna leyti. Sú þróun er einkar fróðleg þegar höfð er hliðsjón af látlausum áróðri voldugra aðila og valdamiðstöðva í þjóðfélaginu gegn opinberum rekstri, hvort heldur er í formi ríkisfyrirtækja eða fyrirtækja sveitarfélaga. Hún felur í sér nöturlega áréttingu þeirra staðreynda, sem vikið var að hér að framan, að íslenzkt einkaframtak hefur ekki reynzt þeim vanda vaxið að halda uppi merki hins svokallaða „frjálsa framtaks“, sem segja má að sé orðið afkáralegt öfugmæli í íslenzku efnahagslífi. Nú má að sönnu benda á ýmsa athafna- menn sem rekið hafa eigin fyrirtæki af skör- ungsskap og forsjálni, menn einsog til dæm- is Tryggva Ófeigsson og Guðmund Jörunds- son, og afsannar það enganveginn fyrri um- mæli mín, heldur vekur þá áleitnu spurn- ingu, hvað verði um fyrirtækin þegar þeir eru allir. Hefðu þessir skörungar og aðrir þeim svipaðir veitt forstöðu samvinnufyrir- tækjum, hefðu hæfileikar þeirra komið að sömu notum og þeir gera nú, en fyrirtækin hefðu haldið áfram að blómgast í höndum annarra hæfra manna, þegar þeir féllu frá, í stað þess að eiga gengi sitt og framtíðar- farnað undir jafnóvissum hlutum og erfðum eða ættarfylgjum. Miklir athafnamenn hafa vissulega stjórnað samvinnufélögum víða um land og stóreflt þau, og stundum hefur staðið styrr um slíka menn, en þeir hafa skilað sínu æviverki í hendur fólksins sem á félögin, og það síðan valið þeim hæfa eftirmenn. Hér er með öðrum orðum um að ræða tvennskonar viðhorf við framtaki dugandi athafnamanna — annarsvegar félagslegt við- horf sem leggur áherzlu á að hæfileikar og framtak athafnamanna sé hagnýtt í þágu heildarinnar (gjarna gegn ríflegri þóknun), hinsvegar eiginhagsmunaviðhorf sem leggur mest uppúr því að dugmiklir athafnamenn sópi sem mestum auði til sín og sinna. Um gildi þessara ólíku viðhorfa fyrir samfélags heildina þarf væntanlega ekki að fjölyrða. Um hitt þarf ekki heldur að hafa mörg orð, að íslenzkt einkaframtak einsog það er túlk- að og prédikað er naumast annað en goð- sögn, sem á rætur í öðrum tíma og verður því fjarstæðari sem nútímaviðhorf í félags- og atvinnumálum festa hér sterkari rætur. Þetta má meðal annars marka af þeim mörgu samvinnufélögum sem mynduð hafa verið utan Sambands íslenzkra samvinnu- félaga, til dæmis um byggingaframkvæmdir, leigubílarekstur og ýmislegt fleira. Jafnvel sumir forkólfar Sjálfstæðisflokksins, sem einna eindregnast hefur barizt fyrir einka- framtaki á öllum sviðum, hafa séð þann kost vænstan að stofna til samvinnureksturs, og má þar frægastan telja sjálfan landbúnaðar- ráðherra með kaupfélag sitt á Hellu á Rang- árvöllum. Það er löngu kominn tími til að verka- lýðshreyfingin geri sér fulla grein fyrir því, að hún á samstöðu með samvinnuhreyfing- unni um að bæta lífskjör alþýðu manna í landinu. Þessar tvær fjöldahreyfingar eru systur sem stefna að sama marki eftir ólík- um leiðum, önnur með því að bæta launa- kjör verkalýðsins, hin með því að tryggja honum hagkvæm verzlunarkjör. Samstarf þessara hreyfinga á öðrum Norðurlöndum hefur borið ríkulegan ávöxt, en hér hafa misskilningur og minniháttar misklíðarefni unnið báðum hreyfingum mikið tjón. Er til dæmis leitt til þess að vita, að málgögn stjórnmálaflokka, sem starfa á grundvelli fé- lagshyggju, skuli leggja sig niður við að skemmta skrattanum með tilefnislausum að- dróttunum og tilhæfulausum dylgjum í garð samvinnuhreyfingarinnar, í stað þess að koma til liðs við þau öfl sem vinna vilja að eflingu hennar og ráða bót á því sem aflaga kann að fara í rekstri hennar. Öfl félagshyggju í landinu eru vissulega mátt- ugri en öfl sérhagsmuna, en fyrrnefndu öflin eru enn sem komið er alltof sundruð, með þeim afleiðingum að minnihlutahópar sér- hagsmunanna ráða lögum og lofum í land- inu. Þetta verður að breytast, ef nokkur von á að vera til þess að ísland þróist í sömu átt og önnur Norðurlönd, en það hlýtur að vera draumur allra félagslega hugsandi íslend- inga. 4 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.