Samvinnan - 01.06.1970, Blaðsíða 64
til umráða. Á leiðinni fór hann
ásamt fylgdarliði um þorp eitt
við rætur Alpanna, og einn af
fylgdarmönnum hans spurði,
hvort menn deildu einnig um
embætti og virðuleika í þessu
vesala bæli.
— Vissulega, svaraði Cæs-
ar, — og ég fyrir mitt leyti
verð að segja, að ég vildi miklu
heldur vera fremstur hér en
annar í röðinni í Rómaborg.
Úti fyrir strönd Illyríu lenti
skip Cæsars í sjávarháska.
Skipstjórinn gat ekki dulið
hræðslu sína, en þá sagði
Cæsar við hann:
— Trúið á hamingjuna, og
vitið, að Cæsar er um borð.
Honoré Daumier (1808—
79), franskur málari og skop-
teiknari, var á yngri árum sín-
um, eins og svo margir fátæk-
ir listamenn, mjög ónákvæmur
í greiðslum á húsaleigu sinni.
Dag nokkurn, þegar húseig-
andinn hafði án árangurs kraf-
ið hann um greiðslu, sagði
Daumier:
— Sjáið nú til, maður minn,
Látið okkur
vinna fyrir yður!
Gerist viðskiptavinur GÍRÓ-þjónustu
Útvegsbanka íslands, — og við
vinnum fyrir yður.
GlRÓ-þjónustan er greiðslu- og
innheimtukerfi, sem léttir af yður
áhyggjum og sparar yður amstur.
Fastar greiðslur yðar til ýmissa
stofnana eru furðu margar og
greiðslustaðir og gjalddagar mis-
munandi. Gjöld eins og t.d. afnota-
gjöld útvarps, sjónvarps og síma.
Greiðslur rafmágns og hitareikninga,
víxla í ýmsum bönkum, afborgana,
skatta og tryggingargjalda. Þannig
mætti lengi telja. Slíkt orsakar bæði
áhyggjur og amstur. Því léttir GÍRÓ-
þjónustan af yður.
GÍRÓ-þjónustan getur einnig séð um
fleiri greiðslur fyrir yður, en fastar
greiðslur, ef þér einungis óskið þess.
Svo sem að ofan greinir er GÍRÓ-
þjónustan einnig innheimtukerfi.
Sem slík býr hún yfir ótal möguleikum.
Hafið þér verkefni á því sviði, þá
komið og ræðið það nánar.
Innheimtukerfi GÍRÓ-þjónustunnar
getur sparað yður bæði fé og fyrir-
höfn.
Þegar þér gerist viðskiptavinur GÍRÓ-
þjónustunnar ræðið þér þessi mál við
okkur. Sameiginlega finnum við þá
útfærzlu kerfisins, sem bezt hentar
yður. Áhyggjum yðar og amstri, af
þessum sökum, er þar með lokið.
Gerist þér þannig fastur viðskipta-
vinur bankans getið þér einnig, að
öðru jöfnu, vænzt meiri fyrirgreiðslu
af hans hálfu.
Látið bankann vinna fyrir yður!
GIRO^
& Í TVK( ;S lí ArNKJl
WÍSLANDS
einhvern tíma rennur upp sá
dagur, að fólk heimsækir
þetta vesala bæli og segir:
„Einu sinni málaði Daumier,
hinn mikli listamaður, í þessu
húsi.“
En húseigandinn var alveg
ósnortinn: — Ef þér borgið
húsaleiguna ekki á stundinni,
sagði hann, — getur fólk byrj-
að að tala þannig strax á
morgun.
Benjamin Disraeli (1804—
1881), jarl af Beaconsfield, for-
sætisráðherra Bretlands og
skáldsagnahöfundur, sagði eitt
sinn um hjónabandið:
„Allar konur ættu að gifta
sig — og allir karlmenn
ættu að láta það ógert.
Eftir að leiðtogi Frjálslynda
flokksins, Gladstone, hafði
haldið langa ræðu, þar sem
hann fór hörðum orðum um
stjómarstefnu Disraelis, af-
greiddi forsætisráðherraim
hann með þessari athugasemd:
64