Samvinnan - 01.06.1970, Síða 66
— Jú, að vísu, svaraði bíl-
stjórinn dræmt. — Ég gat líka
farið eftir þeirri bendingu, að
nafnið yðar stóð á ferðatösk-
unum.
----- /
John Dryden (1631—1700),
hið kunna enska skáld, átti
stundum í hjónabandserjum.
Eitt sinn þegar þannig stóð á,
sagði kona hans í bræði:
— Ef ég væri bók, mund-
irðu áreiðanlega sýna mér
meiri hugulsemi!
Dryden svaraði að bragði:
— Góða mín, þá vildi ég óska
að þú værir almanak. Því
skiptir maður nefnilega árlega!
Dryden, sem átti í fjárhags-
erfiðleikum ekki síður en önn-
ur skáld, var kvöld eitt að
skemmta sér með hertoganum
af Buckingham, Dorset láv-
arði og nokkrum öðrum fagur-
kerum samtímans. Hin bók-
menntalega umræða snerist
um vandann við að tjá sig létt
og lipurlega. Þá kom fram
uppástunga um, að allir við-
staddir skrifuðu nokkrar línur
og legðu undir kertastjakann,
en síðan skyldi Dryden kveða
upp dóm um, hver skrifað
hefði fegurstu og bezt orðuðu
hugsunina. Flestir viðstaddra
lögðu á sig talsverða fyrirhöfn
við að semja textann, en Dor-
set lávarður hripaði tvær eða
66
þrjár línur í fljótheitum og
stakk þeim kæruleysislega und-
ir kertastjakann.
Þegar Dryden hafði lesið
úrlausnirnar, lét hann í ljós
ánægju yfir árangrinum:
— Ég verð að játa, áð allar
eru þessar hugmyndir höfund-
um sínum til mikils sóma; en
mér finnst ég vera tilneyddur
að veita Dorset lávarði verð-
launin og held að þá niður-
stöðu muni allir skilja, þegar
þeir hafa heyrt framlag hans.
Hér stendur: „Undirritaður
greiðir John Dryden Esq. 500
sterlingspunda upphæð þegar
hann fer framá það.“
Enskar og amerískar bækur.
Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar,
Hafnarstræti 9, Reykjavík.
íslenzkar, danskar, norskar, þýzkar og
franskar bækur og ritföng.
Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar,
Hafnarstræti 4, Reykjavík.
Safnast þegar
saman kemur
SAMVINNUBANKINN ÁVAXTAR SPARIFÉ YÐAR
MEÐ HÆSTU VÖXTUM.
ÚTIBÚ ÚTI Á LANDI:
AKRANESI
GRUNDARFIRÐI
PATREKSFIRÐI
SAUÐÁRKRÓKI
HÚSAVÍK
KÓPASKERI
STÖÐVARFIRÐI
VÍK í MÝRDAL
KEFLAVÍK
HAFNARFIRÐI
SAMVINNUBANKINN
ANNAST ÖLL INNLEND BANKAVIÐSKIPTI.
SAMVINNUBANKINN
Bankastræti 7, Reykjavík, sími 20700
HBS
: