Fréttablaðið - 22.08.2009, Page 33
menning
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ]
ágúst 2009
M
enningarnótt er
orðin fasti í dagatal-
inu, rétt eins og
undangengnar helg-
ar: Verslunarmanna-
helgin og Gay Pride. Og ólíkt mörg-
um helgidögum eru þessir
síðsumarsdagar tilefni til mann-
fagnaðar víða um land þar sem
þúsundir koma saman úti undir
berum himni, stundum ekki til ann-
ars en að sjá nýjan stað, líta á
mannlífið og þiggja smá veitingar.
Um síðustu helgi komu þúsundir
saman á Eyrarbakka og fóru um
þorpið í stríðum straumum. „Þetta
var eins og á Oxford-stræti,“ sagði
einn heimamaður. Er það málið?
Finnum við á endanum samstöðuna
í mannfjöldanum?
Dagskrá Menningarnætur er afar
fjölbreytt eins og hún á vanda til:
raunar hefur dagskráin hin síðari
ár sprengt öll kynningarform dag-
blaða og prentaðs máls. Vefurinn
reynist þokkalegasta tækið til að
miðla upplýsingum um atburðina
sem í vændum eru: www.menning-
arnott.is. Það er 2009-bragur á öllu,
kostunarskiltin horfin og menn að
gera sitt á einfaldan og ódýran hátt.
Veitendur eru af öllu tagi og yfir-
skrift hátíðarinnar, Húsin í bænum,
er elskuleg. Það er þó ekki boðið upp
á kynningu á þeim húsum í elsta
bæjarhluta Reykjavíkur sem verk-
takar og skuldsettir eigendur eru
áfjáðir í að rífa. Það hefði verið gott
tækifæri undir þessari yfirskrift að
láta þá ásamt tilleiðanlegum borgar-
fulltrúum standa fyrir máli sínu við
hvert það hús sem er í hættu.
„NÓTTIN HEFUR NÍÐST Á MÉR...“
Það er ekki víst að allir verði jafn hressir í fyrramálið
og þeir eru nú á björtum laugardegi. Menningarnótt
í Reykjavík er fram undan og útlit fyrir þurrt og hlýtt
veður. Tvö stærstu hljóðkerfi landsins munu bítast á
yfi r Tjörninni og viðbúið að þúsundir leiti í dag sam-
stöðu á götum miðborgarinnar.
MENNING PÁLL BALDVIN BALDVINSSON
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍE
L
„Ég þótti sér-
vitur þá“
Breski ljósmynd-
arinn Brian
Griffin í
viðtali um
feril sinn
og verk-
efni.
SÍÐA 4
Bragð er
að þá ...
Myndasaga eftir
Bjarna Hinriks-
son úr nýju
hefti af (gisp!)
sem kemur út í
dag.
SÍÐA 6