Fréttablaðið - 22.08.2009, Síða 82
50 22. ágúst 2009 LAUGARDAGUR
Hljómsveitin Sometime
hefur gefið út aðra smáskífu
sína af plötu sinni Supercali-
fragilisticexpialidocious.
Smáskífan nefnist Heart of
Spades og kemur út á netinu
og á kassettu í fimmtíu núm-
eruðum eintökum.
Með kassettunni fylgir
frítt niðurhal af henni á síð-
unni Tónlist.is. Á smáskíf-
unni eru fimm endurhljóð-
blandanir eftir Steed Lord,
SvenBit, Introbeats, Oculus
og Trulz & Kjex. Kassettan fæst einungis í tískuverslununum KVK og
KronKron. Einnig er hægt að kaupa lögin á tonlist.is, grapewire.net og
fleiri síðum. Sometime fagnar útgáfunni í kvöld klukkan 20.20 í versl-
uninni KVK, Laugavegi 58a. -fb
„Svona hefði Jackson sjálfur
eflaust viljað gera þetta,“ segir
Páll Óskar Hjálmtýsson, sem
afhenti Barnaspítala Hringsins
eina og hálfa milljón á fimmtudag.
Peningagjöfin var ágóði miðasölu
af minningarkvöldi um Jackson á
Nasa sem haldið var 11. júlí síð-
astliðinn, þar sem ein milljón
króna safnaðist, en Byr sparisjóð-
ur bætti um betur og lagði fram
hálfa milljón til viðbótar.
„Michael Jackson sjálfur fór
mikinn í góðgerðastarfsemi ýmiss
konar og er meðal annars í Heims-
metabók Guinness fyrir að vera
sá einstaklingur sem mest lagði af
mörkum til ýmissa góðgerðamála
um heim allan. Ákvörðunin um
að veita Barnaspítala Hringsins
þessa peningagjöf er því alveg í
hans anda,“ segir Páll Óskar, sem
kom sjálfur fram á minningar-
kvöldinu. Auk þess komu Alan
Jones og Seth Sharp fram ásamt
hljómsveitinni Jagúar og Yesmine
Olsson sem sýndi Jackson-spor-
in ásamt fleiri dönsurum. Spiluð
voru svo Michael Jackson-lög alla
nóttina fyrir fullu húsi. - ag
Hringurinn fékk
Jackson-söfnunarfé
Í MINNINGU MICHAELS JACKSON Páll
Óskar stóð fyrir minningarkvöldi um
Jackson á Nasa 11. júlí ásamt fleirum og
var allur ágóðinn af miðasölu, ein millj-
ón, auk hálfrar milljónar frá Byr, afhentur
Barnaspítala Hringsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SOMETIME Hljómsveitin Sometime hefur gefið
út aðra smáskífu sína.
Smáskífa frá Sometime
PÁLL ÓSKAR OG MONIKA Halda tvenna
tónleika í Listasafni Einars Jónssonar.
Páll Óskar og Monika halda tvenna
tónleika í Listasafni Einars Jóns-
sonar í dag klukkan 16 og svo
aftur klukkan 18. Þau munu flytja
vinsælustu lög Palla í sérstökum
útsetningum fyrir hörpuna, auk
ýmiss annars góðgætis af efnis-
skránni þeirra. Aðgangur er
ókeypis.
Seinna um kvöldið verður Páll
Óskar í diskóstuði þegar hann
endar stórtónleikana í Hljómskála-
garðinum rétt fyrir flugeldasýn-
inguna. Páll Óskar stígur þar á
svið kl. 22 og spilar í hálftíma.
Spila í Lista-
safninu
„Við vorum nokkrir vinir sem
tókum okkur saman í vetur og
ákváðum að taka til í skápum og
geymslum og halda flóamarkað um
borð í Hvalasetrinu. Það gekk svo
vel að við ákváðum að endurtaka
leikinn núna í tilefni menningar-
dagsins og halda markað bæði á
bryggjunni og um borð í skipinu,“
segir Eva María Þórarinsdóttir,
markaðsstjóri hjá Eldingu.
Að sögn Evu Maríu verða um tíu
manns með bása á markaðnum í
dag þar sem hægt verður að kaupa
allt milli himins og jarðar. Heitt
verður á könnunni og boðið verð-
ur upp á ratleik um höfnina fyrir
fjölskyldur. „Ratleikurinn hefst
um borð í Hvalasetrinu og stendur
yfir allan daginn. Það verður þri-
svar sinnum dregið um verðlaun
yfir daginn og koma verðlaunin frá
fyrirtækjum í nágreni við höfnina.“
Auk flóamarkaðarins býðst gest-
um að skoða listasýningu á vegum
Félags frístundamálara sem verður
á neðri hæð Hvalasetursins. Flóa-
markaðurinn hefst klukkan 11 í
dag, en Hvalasetrið verður opið frá
klukkan 8. - sm
Fljótandi markaður
ALLT TIL SÖLU Eva María, markaðsstjóri
hjá Eldingu, segir að mikið verði um
að vera í kringum gömlu höfnina í dag.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Tónlistarmaðurinn Orrustubjarki spilar með vini
sínum Krumma og trommaranum Frosta Gringó í
portinu hjá skemmtistaðnum Kultura í dag.
„Við erum að spila í fyrsta sinn saman og ég er
mjög spenntur,“ segir Orrustubjarki, eða Bjarki
Markússon. „Við vorum að prufa eina æfingu í gær
[fimmtudag] og það kom mjög vel út.“ Þeir félagar
ætla að bjóða upp á tilraunakennt sýrurokk og hefja
þeir leik klukkan 15.
Bjarki hefur verið lengi í tónlist og byrjaði að
taka upp árið 1995. Hann hefur gefið út eina plötu
með Pétri og Úlfunum en fyrsta sólóplata hans er
væntanleg í haust. Útilokar hann ekki að Krummi
verði þar í gestahlutverki.
Nafnið Orrustubjarki er óvenjulegt og Bjarki
hefur góða skýringu á því: „Það var víkingur í
gamla daga sem slátraði manni og öðrum og mér
fannst það hæfa mér því kalla sjálfan mig „artist/
criminal“,“ segir hann án þess að blikna.
Fjöldi annarra hljómsveita spilar í portinu í dag,
þar á meðal Rafgashaus, Skorpulifur, Anonymous,
Tonik, The Way Down og Biogen. - fb
Orrustubjarki stígur á svið
ORRUSTUBJARKI Orrustubjarki spilar með vini sínum Krumma
í fyrsta sinn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Í FLATEY Lay Low í Flatey þar sem upptökur fóru fram bæði innan- og utandyra.
Nýr tvöfaldur diskur með
tónlistarkonunni Lay Low
kemur að öllum líkindum
út hérlendis fyrir jólin og
erlendis eftir áramót.
Á fyrri disknum verða sjö
lög sem Lay Low tók upp
órafmagnað í Flatey
um síðustu helgi
og á hinum verður
DVD-mynddiskur.
Tvö laganna eru
ný, þar af annað
sem hún samdi
við ljóðið Sorg-
in frá árinu 1884
eftir skáldið Und-
ínu, sem hét réttu
nafni Helga Stein-
vör Baldvinsdótt-
ir. Myndatökumenn
voru á staðnum sem
festu spilamennskuna
á filmu og verða þær upp-
tökur á DVD-disknum.
„Okkur langaði að
skjóta myndefni með Lov-
ísu að flytja lögin sín og skoðuð-
um eyna í júní og tókum mynd-
ir,“ segir umboðsmaðurinn Kári
Sturluson. „Í kjölfarið tókum við
þetta lengra og kýldum á upptök-
ur um helgina. Það voru engin tvö
lög tekin upp á sama stað og það
var tekið upp bæði úti og inni.
Í einu lagi spiluðu hænsn ansi
stórt hlutverk því þau voru á
vappi í kring,“ segir hann. „Flat-
ey á eftir að setja mark sitt á
öll lögin því öll stemningin
úr eynni smitast inn í upp-
tökurnar. Við tókum þetta
þannig upp og ætlum að
láta þessar tökur standa.“
Leikstjórinn Denni
Karlsson sem vann við
heimildarmynd Sigur
Rósar, Heima, stjórnaði
upptökunum fyrir
DVD-diskinn og
um kvikmyndatöku
sá Víðir Sigurðs-
son. Hljóðupptaka
var í höndum Viðars
Hákonar Gíslasonar,
eða Vidda í Trabant.
freyr@frettabladid.is
Órafmögnuð Lay
Low í Flatey
SÝNINGARTÍMAR
FORSÝNINGA SUNNUDAGINN 23. ÁGÚST
Sambíóin Kringlunni sýnd í 3D kl. 4 • Sambíóin Akureyri kl. 4 • Sambíóin Selfossi kl. 4 • Sambíóin Keflavík kl. 4
Frá þeim sömu og færðu okkur
Finding Nemo, Wall-E og Monsters Inc.
Stórkostlegt ævintýri
sem engin fjölskylda má missa af
Ein besta Disney-Pixar mynd til þessa
Sýnd með Íslensku tali
FORSÝNINGAR
Á MORGUN!