Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Síða 12

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Síða 12
69 Hjer er efni í ítarlega ritgjörð, sem ekki á sæti í þessum athugasemdum. Endist þessu riti aldur og þróttur, er von- andi að það hverfi aptur, alvarlega, að þessu efni. Við III. flokk. Fyrstu 2 árin var ull og sauðfje selt innan- lands, en þar á eptir var allt vörumagn fjelagsins sent á er- lendan markað, á ábyrgð fjelagsmanna, að smjöri undan teknu. Pað var mest selt innan lands. Áhugi fjelagsmanna sjest, að líkindum, bezt á útflutningi ullar og lifandi sauðfjár. Pað tímabilið, sem þetta var jafnast, var áhuginn öruggastur eða stöðugastur. Hvarfl, til viðskipta við kaupmenn, fór 1 j verða meira um aldamótin og þar á eptir, enda fór þá smákaup- mönnum óðum fjölgandi, og »nýir vendir sópa bezt« Eigin gagn og stundarhagur var svo auðsætt áður, að það hjelt mörgum föstum í fjelaginu, sem valtur varð í sessi fyrir mjúklæti og glæsiboðum hinna nýrri kaupmanna. Fram að 1890 var eigi, í skýrslum fjelagsins, gjörð skil- greining á veturgömlum sauðum og eldri. En það er áreiðan- legt, að veturgamlir sauðir voru til jafnaðar færri, hlutfallslega, þessi fyrri ár, en hin síðari, því þeir voru þá síður hæfir til útfiutnings (Ijelegri) og sauðabændur þá óvanir því, að eyða til muna af veturgömlum sauðum. Undir aldamótin tók eldri sauðum óðum að fækka og stafaði það af tvennuj: Innflutn- ingsbann sauðfjár á Englandi spillti markaðnum og dróg mjög úr útflutningi lifandi sauðfjár frá íslandi, af ýmsum ástæðum: Sauðfjárfarmar þurftu að vera smærri en áður, og þar af leiðandi voru skipin ver fallin til fjárflutninga; urðu því talsverð slys á útflutningi sauðfjárins, en það vakti aptur allmikinn óhug hjá mönnum á útflutningnum. Jafnhliða þessu fór vinnuekla vaxandi og kaupgjald hækkaði; þótti því dýrt að ala upp eldri sauði. Ullin var og í lágu verði, um þessar mundir, og borgaði alls eigi vetrarfóður sauðanna, eins og þó var optlega áður. Við IV. flokk. Þegar athuguð er meðalþyngd sauðanna, er auðsætt, hversu hún hefur farið vaxandi, fyrstu 10 árin, og er þó lægra hlutfall veturgömlu sauðanna, þau árin, eins

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.