Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Qupperneq 21
78
25. grein.
Heimilt er fjelagsstjórninni að heimta tryggingu af
formanni eða hverjum þeim, sem hefur í vörzlum sín-
um fjármuni, er fjelagið á eða hefur til umráða.
26. grein.
Fjelagið skal koma á fót sþarisjóðsdeild, þannig, að
það tekur við innlögum í sparisjóðsreikning, samkvæmt
reglum, er aðalfundur semur fyrir sparisjóðsdeildina.
Varasjóður fjelagsins og aðrar eignir þess ásamt »soli-
dariskri« ábyrgð fjelagsmanna, eru til tryggingar spari-
sjóðsinnstæðufje í vörzlum fjelagsins.
27. grein.
Fjelagið verður ekki rofið, nje eignum þess skipt,
nema með samþykki tveggja þriðju hluta fjelagsmanna
á tveimur aðalfundum í röð.
28. grein.
Nú verður fjelagið rofið og skulu þá þeir, er aðal-
fundur kveður til, annast um að koma öllum eignum
fjelagsins í peninga, svo haganlega og fljótt sem unnt
er. Eptir að búið er að greiða allar skuldir, sem hvíla
á fjelaginu, skal eignum þess skipt milli fjelagsmanna
hluífallslega eptir innstæðu þeirra í stofnsjóði.
29. grein.
Lögum fjelagsins verður ekki breytt, nema á aðalfundi,
og sjeu að minnsta kosti tveir þriðju hlutar fundarmanna
samþykkir breytingunni. Sama gildir um skerðing á fje
varasjóðs. Pess skal jafnan getið í fundarboðinu, þegar
leggja á fyrir fundinn tillögur um breytingu á fjelags-
lögunum eða skerðing á fje varasjóðs.
30. grein.
Pau ákvæði í lögum fjelagsins, frá 1896, er snerta á-