Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Blaðsíða 26
Nýbreytni
í kaupfjelagsskap og samvinnumálum, innan lands.
Eitt af hlutverkum þessa tímarits er að sjálfsögðu það,
að ritið sje sjer úti um fregnir af hvers konar nýbreytni
í samvinnufjelagsmálum innan lands, eigi að eins með
tilliti til þess, sem í framkvæmd er komið og full reynsla
fengin fyrir, heldur og að því leyti sem snertir hreyfingar
og ráðagjörðir í þess konar efnum. Skýringar þær og
fregnir, sem ritið flytur þá um þessi atriði, ættu að geta
orðið fjelögunum og fleirum að ýmsu gagni. Tímaritið
ætti að vera hjer hinn eðlilegasti fregnberi og sambands-
liður milli fjelaganna, og allir þeir, sem frá einhverjum
fjelagslegum umbótum og umbótatilraunum hafa að segja,
ættu að vera fúsir á að bæta við þess konar frjettir og
fróðleik, sem tímaritið vill flytja, svo lesendur ritsins
eigi þar að nýbreytnasafni að ganga í sínum sameigin-
legu áhugamálum. Flestir lesendur tímaritsins munu vera
í einhverju samvinnufjelagi og hjá þeim er hinn bezti
jarðvegur fenginn fyrir frækorn nýjunganna; hjá þeim
ætti einnig útbreiðslan að vera vissust og gagnið fljót-
fengnast.
En, til þess að hjer megi ætlunarverkið vinnast, er
það hvergi nærri einhlítt að ritstjórnin sje athugul og
vakandi á verði, eins og sjálfboðið er, heldur þurfa allir
þeir, sem efla vilja gagnsemi ritsins, að veita því hjer
aðstoð sína og liggja eigi á nýbreytnisfrjettum, eins og
ormar á gullinu forðum daga. Nýi tíminn og heill þjóð-