Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Side 32
89
annað óhugsandi, þar sem um jafn auðugan reit er að
gresja sem Akureyrarbæ, að því er snertir hyggna og
hagfróða ættjarðarvini.
Hin nyja braut fjeiagsins er stutt, enn sem komið er,
en vonandi er, að hún verði löng og happasæl. Fjelagið
vantar ýmislega reynslu, eins og eðlilegt er, eptir svona
stuttan tíma, ekki fullt ár. Það er eigi komið fyllilega í
ljós, hver hinn árlegi reksturskostnaður verður; hvernig
farnast með vöruleifar; hvernig gengur að fullnægja
þörfum fjelagsmanna, þar sem langt er á erlendan
markað að sækja, ef þurrð verður á einhverju, en hins
vegar er jafnframt ætlazt til að hafa vörur handa utan-
fjelagsmönnum, með fleiru, sem enn er eigi fyllilega
komið í ljós. Ef fjelagsmenn sjálfir hafa viðskiptin
nokkuð jöfn og föst og smáauka þau, bætir það mikið
úr. Það sýnist fyllilega líklegt, eins og aðstaðan er nú
við Eyjafjörð og fyrir mörgum í Akureyrarbæ, að Kaup-
fjelag Eyfirðinga ætti að geta staðizt samkeppnina, þrif-
izt og blómgast á hinum nýja grundvelli. Pessi eina
sameignarverzlun, eða ítöluverzlun, í hinum stóra og
verzlanaríka Akureyrarbæ, virðist vissulega eiga skilið aö
fá þann stuðning, sem dugi til þess, að fjelagsverzlunin
beri, innan fárra ára, höfuð og herðar yfir allar aðrar
verzlanir í bænum.
Tímaritið væntir þess, að geta síðar skýrt lesendum
sínum frá því, að vel sækist að þessu takmarki fyrir
Kaupfjelagi Eyfirðinga, um leið og það þakkar fjelaginu
fyrir góðar viðtökur og upplýsingar.
II. Kjötsala kaupfjelaganna.
í 1. hepti Búnaðarritsins er allítarleg grein um sölu á
íslenzku saltkjöti erlendis, eptir alþingismann Hermann
Jónasson. í greininni er skýrt frá sölu á því kjöti, sem
Sigurður Jóhannesson stórkaupmaður hafði í umboðssölu