Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.06.1907, Qupperneq 35
92
bæjum erlendis, má samt telja bygging þeirra mjög
þarfa nýbreytni. Hugsanlegt er, að hús þessi megi nota
til slátrunar af fleirum en fjelögunum sjálfum. Ef húsin
eru sæmilega gjörð í fyrstu, ætti að mega nota þau á
einhvern hátt, þá tíma ársins, sem þeirra þarf eigi með
í hinu upphaflega augnamiði.
IV. Slátrunarfjelag Sunnlendingfa.
Eptir langan og rækilegan undirbúning er nú fjelag
þetta komið á fastan fót, og tekur væntanlega til starfa
á þessu ári. Lög fjelagsins voru samþykkt á fundi við
Þjórsárbrú, 28. Jan. þ. á. Tala þeirra manna, sem lofað
höfðu hlutdeild í sláturhúsinu, var þá orðin 565 úr 26
hreppum í Árnessýslu og Rangárvalla. Stofnfjárloforð
orðin rúm 11 þús. kr. Hinir kjörnu fulltrúar á fundínum
samþykktu, í einu hljóði, að stofna sláturhúsið. Stjórn
fjelagsins var kosin, tveir menn úr Árnessýslu: Vigfús
Guðmundsson í Haga og Ágúst Helgason í Birtingaholti,
og tveir menn úr Rangárvallasýslu: Þórður Guðmunds-
son í Hala og sjera Eggert Pálsson á Breiðabólstað. *
Að líkindum verður þetta stærsti almennur fjelags-
skapur til verklegra framkvæmda, sem á fót kemst,
hjer á landi, þetta ár. Hann nær yfir tvær, einna fjöl-
mennustu sýslur landsins og miðar til stórra umbóta á
meðferð og verðgildi sláturfjenaðar á Suðurlandsundir-
lendinu, en þar er aðalkjötforðabúr höfuðborgarinnar.
Það má og telja líklegt að fjelagsskapur þessi nái til
fleiri greina en þeirra, sem beinlínis lúta undir aðaltil-
ganginn.
Lög fjelagsins hefir tímaritið enn eigi fengið, þrátt
fyrir það þó drög hafi verið lögð til þess, að fá sem
fyllstar upplýsingar um þetta mál. Er vonandi að úr því
bætist, innan skamms, og nánari frjettir geti komið síðar
i ritinu.
* Að nokkru tekið eptir ísafold 6. Febr. þ. á.
6*