Andvari

Volume

Andvari - 01.07.1960, Page 12

Andvari - 01.07.1960, Page 12
106 JÓN STEFFENSEN ANDVAHt numið um einfeldni ei einasta yfirsetukvenna heldur og jafnvel lærðra manna vor á meðal, í slíkum efnum, þótti mér ærið þungt og þeim mun þyngra er ég heyrði ljót brixlyrði um slíka einfeldni vora; þó þyngst þá hvör ein var kölluð til þessa sem fyrir varð, so þar dugði engin umvandan . . . „Vegna áður téðs fekk ég þá síðast sigldi (þ. e. 1745), strax í hug að translatera þessa bók, mínum landsmönnum til góðs og því kostaði hér um 1 5 Rd. upp á figururnar til þess fyrsta upplags. En þá ég kom til landsins var mér sagt, að vel æru- verðugur prófasturinn i Mýrasýslu sr. Vigfús Jónsson hefði útlagt þessa hók.. Þó að það sé ekki vonum fyrr, að hafizt er handa um útgáfu ljósmóðurfræði, þá er það dálítið torkennilegt, að eftir hálfrar aldar svefn rumska skyndilega tveir prestar samtímis við sér og að það skuli bera upp á ferðalok þeirra Lúðvigs Elarboes og Jóns Þorkelssonar, en þeir dvöldu sem kunnugt er hér á landi 1741—1745 við ýmsar umbætur á kirkju- og kennslumálum þjóðarinnar. Mér þykir trúlegast, að til þeirra megi rekja hin skjótu viðbrögð prestanna og að hin ljótu brigslyrði, sem biskup heyrði, séu frá þeim félögum runnin. En að biskup geti ekki Harboes eða Jóns við málefni, er til framfara horfa, þarf ekki að vera neitt undrunarefni, þegar höfð eru í huga viðskipti hiskups og þeirra í sambandi við veitingu Hólastóls. Ilarboe fékk þá bræður Finn og Vigfús Jónssyni til að rita kirkjusögu landsins og má hann þá vel hafa fært það í tal við Vigfús, að hann þýddi einnig ljósmóðurfræðina. Og kunnugt er, að Jón Þorkelsson hafðí áhuga á heilbrigðismálum þjóðarinnar, þvi ein af tillögum þeim, er hann sendi kirkju- og kennslumálaráðinu og sem leiddu til sendifarar hans og Harboes til Islands var: ,,Om Een Botanicum og Land Chirurgum effter som Landet har ingen der forstaaer noget her af til gavns.“ (Ævis. J. Þ. II, hls. 121). Auðséð er, að Halldór biskup Brynjólfsson hefur borið nokkurn kvíða i brjósti um það, hverjar viðtökur hókin muni fá, og er það aðallega þrennt, sem veldur honum áhyggjum: „ 1. Að sumt fólk sie, sem ei vill læra neitt soddan, heldur blífa í sinni fyrri blindni og fávitsku." „2. Að um hana og hennar nytsemd verði stór ágreiningur, að sumir (sem ei hafa rneira vit) haldi hana þarflausa . . . .“ En um þriðja atriðið verður honum skrafdrjúgast, nefnilega ,,að hún komist í óguðlegra rnanna hendur, hvörra tungur eru upptendraðar af helvíti, með fúlum, svívirðilegum, gikkslegum losta og hégóma orðum að hæða sköpun Drottins og hellst þá limu mansins er þeir ættu mesta virðing að tilleggja.“ Síðan heldur biskupinn áfram að lesa þessum „blygðunarlausu háð- skálkum“ pistilinn, sem þó „vitandi fyrir víst að hæði author og interpres hafa so lempilega bókina skrifað og útlagt að enginn sem stjórnast af Guðs anda skyldi hið minsta hneixlast af hennar orðum eða atvikum.“ Loks leggur biskup

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.