Andvari

Árgangur

Andvari - 01.07.1960, Síða 29

Andvari - 01.07.1960, Síða 29
ÖRNÓLFUR THORLACÍUS: UM UPPRUNA MANNA Staða mannsins í dýraríkinu, Maðurinn heyrir til ætthálki, sem prí- uiatar kallast. Til prímata teljast öll nú- lifandi og aldauða kyn manna, apa og kálfapa. Skyldust dýr prímötum um líkamsgerð meðal núlifandi spendýra eru skordýra- æturnar, en til þeirra teljast broddgeltir, snjáldurmýs og moldvörpur. Af stein- gervingum ráða menn, að stofn prímata I'afi skilizt frá skordýraætum fyrir byrjun tertíertímabils — á miðöld jarðsögunnar. Elztu spendýr voru smákvikindi, sem trúlega hafa mestmegnis lifað á skordýr- um og ormum. Sumar þessara frumstæðu skordýraæta leituðu upp í trén og breytt- ust smám saman úr merkurdýrum í klifur- dýr. Til þe ssara frumstæðu klifurdýra má rekja ættir prímata. Pegar forfeður prímatanna gerðust skógardýr, aðlagaðist líkamsgerð þeirra Itinum nýju lifnaðarháttum. Dýr merkur- ntnar skynja heiminn í kringum sig í 'ikum mæli með þeffærum sínum. Þau eri' því vel þroskuð hjá merkurdýrum, en sjónin stundum í lakara lagi. Klifur- dýrum er öfugt farið. Þau þurfa á góðri sJ°n að halda við að stökkva grein af Júem. Allir prímatar hafa góða sjón. ^llir nema hinir frumstæðustu, hálfap- ‘lrn'r, hafa samstæð augu — framan á 'ofðinu — og skvnja því vel dýpt og fjar- ægðir. Skógarlífið gerir jafnframt minni n'ölur til þefnæmis cn líf á jörðu niðri,- enda er þefnæmi prímata fremur óþrosk- að, og þeim mun lakara, sem ofar dregur á þróunarbrautinni. Breyttum skynfærum fylgja breyting- ar á heilanum, — hann hreytist úr „lyktarheila" í „sjónarheila". Góð sjón veitir staðbetri þekkingu á umheiminum en gott þefskyn, sjónarheilinn hefur því skilyrði til meiri þroska en Ivktarheilinn. Auk þess krefst skógarlífið meiri ná- kvæmni og samstillingar í hreyfingum en merkurlífið, klifur og stökk milli greina eru hraðar og flóknar hreyfingar. Til að þær fari vel og skipulega frarn, er þörf flóknari heila en skordýraætur hafa. Þegar forfeður okkar breyttust úr mcrkurdýrum í skógardýr, breyttist heili þeirra því að skipulagi og varð jafnframt flóknari. Þessi þróun heilans hefur síðan fylgt prímötum á þroskaferli þeirra. í prímötum hafa haldizt mörg einkenni úr likamsgerð frumstæðra spendýra. Lífið í trjánum leyfir litla sérhæfingu vöðva- og beinakerfis. Hreyfingarnar eru svo margvíslegar, að þróunin getur ekki beinzt inn á þrönga sérhæfingarbraut. Dýr merkurinnar þróuðust sum til hlaupa, svo sem hesturinn. 011 beinagrind og vöðvakerfi hestsins hefur sérhæfzt til að framkvæma takmarkað svið hreyfinga fljótt og örugglega. Gleggst sést þetta á fæti hestsins, þar sem allar tærnar nema cin hafa smám saman horfið við þróun- ina. Fætur og hendur prímata halda hins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.