Andvari

Årgang

Andvari - 01.07.1960, Side 43

Andvari - 01.07.1960, Side 43
andvari UM UPPRUNA MANNA 137 brugðin beinagrind nútímamanns. í sömu lögum fundust steinverkfæri frá fvrri fornsteinöld. Menn eiga erfitt með að saetta sig við, að menn með nútímasniði hafi verið uppi á fyrri fornsteinöld. Margir benda á, að maðurinn hafi verið grafinn upp af leikmönnum og séu því ongar sönnur fyrir því, að hann tilheyri raunverulega þessum jarðlögum, eða að minnsta kosti geti verið að hann hafi l>ara verið grafinn þarna. Efnagreining bendir og til þess, að maðurinn af Galley Hill sé ekki eins forn og verkfærin lcring- l|m hann benda til. Heidelbergmannsins er getið framar. Þessir og fleiri fundir svipaðir hafa ekki verið felldir inn í ættatölu manna. Her vantar marga hlckki í keðjuna. Mörgum þykir allt þetta benda til, að nutímamaðurinn, Homo sapiens, eigi sér Hnga þróun að baki og sé að minnsta kosú jafngamall Neanderdalsmanninum. A Jövu liafa fundizt tvær gerðir frum- manna, sem hér mætti nefna. Sólómaður- lnn> Homo soloensis, fannst við Sóló- fljot örskammt frá leifum apamannsins en er mun yngri, frá því seint á pleistó- Sen, eða um það bil jafngamall Neander- dalsmanninum. Sólómaðurinn líkist líka 'eanderdalsmönnum um margt: hann lefl,r lágt enni, beinbrún yfir augum s- frv. Onnur atriði, einkum í gerð nakknns, minna fremur á nútímamenn. Onnski hafa blandazt þarna kyn, skyld '■eanderdalsmönnum og nútímamönn- Ef til vill er þetta vísbending þess, an kyn Neanderdalsmanna og nútíma- jr>anna hafi þróazt frá apamönnum? Þá æri okkur að líta á Sólómanninn sem 'u í þessari þróun eða kannski sem hliðar- S'em, ekki langt frá sameiginlegum upp- 111 na Neanderdals-greinarinnar og sapiens- Sreinarinnar. ^adjakmaðurinn, sem Dubois gróf llPP á undan Jövumanninum, cr talinn forfaðir frumbyggja Ástralíu. Honum svipar nokkuð til Sólómanna og Ncan- derdalsmanna, enda ekki óhugsandi, að Ástralíumenn standi nær Neanderdals- mönnum en aðrir nútímamenn. Carmelfjallsstofninn. Á útjaðri hins forna menningarsvæðis Neanderdals- manna, í hellum á Carmelfjalli í Palest- ínu, hafa líka fundizt leifar manna, sem í senn minna á Nea.nderdalsmenn og Homo sapiens. Urn þá er svipað að segja og Sólómenn: við vitum lítið um þá. Kannski eru J>eir kynblendingar Homo neanderthalensis og Homo sapiens, til orðnir á mörkum útbreiðslusvæða Jreirra, kannski eru J>eir nákomnir sameiginleg- um stofni Jæssara tveggja manntegunda? Sumir vilja túlka fundina, sem talað er um í Jressum kafla, J^annig, að Nean- derdalsmaðurinn og Homo sapiens til- heyri í raun og veru einni og sömu manntegund, og milli Jressara afhrigða hafi alltaf verið til ótal millistig. Því sé hvorki rétt að tala um óháða þróun Jress- ara tveggja manngerða, né að önnur hafi Jiróazt af hinni. Af því, sem hér er skráð, má greina, hve sáralítið við vitum um sögu Homo sapiens fyrr en hann nemur land í Evrópu í lok ísaldar. Hér verður ekki rakin frekari þróunar- saga þessarar manntegundar, sem náð hefur meiri völdum og útbreiðslu hér á jörð en nokkur dýrategund á undan henni. Ég hef safnað efni þessarar ritgerðar úr ýmsum áttum. Sumt hef ég sótt í tímaritsgreinar. Af bókum um líffræði vil ég fremst nefna hók próf. A. S. Romer’s, „Man and the vertehrates". Sögulegar heimildir um leit mannsins að uppruna sínum eru teknar úr „Ich suchte Adam", eftir Herhert Wcndt,

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.